K Steinarsson 1-15.júní
K Steinarsson 1-15.júní

Pistlar

Hvað er svona merkilegt við það?
Laugardagur 6. júní 2026 kl. 06:58

Hvað er svona merkilegt við það?

Ég las áhugaverðan pistil fyrir stuttu þar sem talað var um að ef við ættum að leggja áherslu á að kenna drengjum að þvo, þrífa og elda þá ættum við í raun einnig að kenna stúlkum að nota sláttuvélar, hengja upp myndir og tengja rafmagn.

Þegar umræðan um þriðju vaktina stóð sem hæst ákvað ég að fara yfir listann með eiginmanninum. Ég hafði fundið lista á netinu yfir skiptingu heimilisverka og fór að lesa upp. Jólagjafirnar – ég! Taka of lítil föt úr skúffum og skápum barnanna og selja eða gefa – ég! Panta tíma hjá lækni – ég! Þetta byrjaði nokkuð vel og ég taldi mig hafa nokkra yfirburði svona strax í upphafi. Sigri hrósandi hélt ég áfram að lesa upp allt það sem einkenndi þessa þrautagöngu mína sem húsmóðir á heimilinu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Mér til mikillar undrunar fóru þá skyndilega að birtast ákveðin atriði sem einkenndu hana einmitt ekki. Ákveða hvað á að vera í matinn–við bæði. Fara út með ruslið–hann. Skjótast eftir hinu og þessu á öllum tímum sólarhringsins–hann. Grilla kóteletturnar, setja upp trampólínið, bera á pallinn og sjá um garðinn á sumrin–hann. Græja börnin í háttinn–við bæði.

Nei, heyrðu, sko, hvurslags listi er þetta eiginlega? Ég sem hélt að þetta ætti einmitt bara að vera mér í hag! Ég stóð sjálfa mig að því að vera farin að hoppa yfir ákveðin atriði. Staðan var 10-7, reyndar fyrir mér, en það var ekki niðurstaðan sem ég var búin að tippa á!

Ég lagði símann frá mér og sagðist hreinlega ekki hafa meiri tíma aflögu til þess að lesa allan listann. Það væri jú brjálað að gera hjá mér. Ég þyrfti að fara að vesenast í þvottinum. „Á ég ekki að hjálpa þér?“ spyr hann. „Nei góði, vertu ekkert að því.“

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar