Grímsi áfram blár
Jæja, í síðasta pistli var ég að velta fyrir mér hvort Grímsi GK yrði blár eða rauður, og jú, hann hélt bláa litnum sínum.
Grímsi GK er einn af nokkrum bátum sem voru á netaveiðum í vetur í maí, en núna er enginn bátur á netum frá Suðurnesjunum. Einu bátarnir sem eru á veiðum eru að mestu strandveiðibátarnir, nokkrir dragnótabátar og í Grindavík fáeinir togarar sem þangað hafa komið og stóru línubátarnir.
Núna í byrjun júní hafa tveir dragnótabátar frá Nesfiski verið á veiðum meðfram suðurströndinni og hafa þeir verið að landa í Þorlákshöfn. Sigurfari GK hefur landað þar 69 tonnum í 2 róðrum og mest 44 tonnum, og kom síðan til Sandgerðis og var við veiðar í kringum Eldey og kom með um 35 tonn í land til Sandgerðis. Siggi Bjarna GK er hinn báturinn og hefur hann landað 31 tonni í einni löndun í Þorlákshöfn, en hefur síðan ekki róið meira.
Fín veiði er búin að vera hjá þeim þremur dragnótabátum sem hafa róið frá Sandgerði núna það sem af er júní. Stapafell SH með 31 tonn í 6 róðrum. Benni Sæm GK með 59 tonn í 7 og mest 13 tonn og Aðalbjörg RE með 78 tonn í 7 og mest 16,5 tonn. Mjög blandaður afli er hjá bátunum og töluvert mikið af kola og í aflanum hjá Aðalbjörgu RE er töluvert mikið af sólkola, ufsa og þorski.
Annars þá er mikið um að vera í Sandgerði núna út af strandveiðinni, veiðin hefur reyndar aðeins dalast niður síðan í maí, en bátarnir hafa dreift sér töluvert mikið, fara inn í Faxaflóa, eru utan við Garðskaga, utan við Sandgerði og meðfram ströndinni áleiðis í Röstina. Um 45 strandveiðibátar hafa verið að landa í Sandgerði. Fimm bátar hafa náð yfir 6 tonna afla þar, hæstur er Una KE með 7,1 tonn í 10 róðrum. Hawkerinn GK með 6,9 tonn í 10 og mest 1 tonn. Sæfari GK með 6,55 tonn í 10. Óskar KE, með 6,3 tonn í 9 og mest 950 kíló og Andrea SU með 6,2 tonn í 9.
Í Keflavík er Ósk KE með 4,7 tonn í 9 róðrum og Fjóla GK með 4,8 tonn í 8, reyndar hefur Fjóla GK líka verið að landa í Sandgerði.
Í Grindavík eru 10 strandveiðibátar og hæstur þar er Grindjáni GK með 6,49 tonn í 7 og mest 2,1 tonn. Ólafur GK með 6,28 tonn í 6 og mest 1,78 tonn. Forsetinn GK með 4,57 tonn í 7 og mest 1,25.
Undanfarin ár hafa þó nokkuð margir færabátar, að mestu frá Sandgerði og einhverjir frá Grindavík, verið á ufsaveiðum á Eldeyjarsvæðinu og þar lengra út. Vanalega hafa bátarnir sem eru á strandveiðum klárað sitt tímabil í júlí en undanfarin ár hefur strandveiðitímabilið klárast í júlí. Nú reyndar ber svo við að tveir bátar í Sandgerði eru hættir á strandveiðum og komnir á ufsann, en töluvert langt er að sækja hann. Þessir tveir bátar eru systurbátarnir Sindri GK og Ragnar Alfreðs GK. Ragnar Alfreðs GK á sér ansi mikla sögu á færaveiðum á ufsanum því að báturinn hefur náð að koma með í land tæp 11 tonn af ufsa á færunum.
Þegar þessi pistill er skrifaður eru báðir bátarnir búnir að vera úti í 2 daga, djúpt þarna úti, og tveir aðrir bátar voru líka þarna úti. Dóra Sæm HF kom með 1,3 tonn til Sandgerðis eftir einn dag á veiðum og Baddi sem gerir út bátinn fór svo á strandveiðar á hinum bátnum sem hann gerir út, Tóka ST.
Í Grindavík er einn bátur frá Stakkavík kominn á ufsaveiðar á færunum og er það Hópsnes GK. Hann byrjar nokkuð vel, kom með 3,6 tonn í land í einni löndun. En það má geta þess að þessi færaróður Hópsnes GK er fyrsti róðurinn hjá bátnum síðan snemma í janúar en þá var Hópsnes GK við línuveiðar út af Hvalsnesi og fékk í skrúfuna. Þurfti að draga bátinn til Sandgerðis og þaðan til Njarðvíkur þar sem báturinn var tekinn í slipp, því það tók þó nokkurn tíma að laga vélbúnaðinn, skrúfu og gír þegar báturinn fékk í skrúfuna. En Hópsnes GK er mætt aftur og byrjar bara nokkuð vel.









