Söguleg viljayfirlýsing um flýtingu íbúðauppbyggingar á Ásbrú
Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar lauk með undirritun á viljayfirlýsingu um að flýta uppbyggingu sérbýlislóða á Ásbrú. Undir samninginn rituðu Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco. Samkomulagið markar ákveðin tímamót í sögu Ásbrúar en markmiðið er að skapa fjölbreyttara íbúðaframboð og móta grænt og framsækið fjölskylduhverfi þar sem áður var herstöð.
Fjölbreyttari byggð, grænar lausnir og nýr upplýsingavefur
Ásbrú hýsir nú þegar hátt í 5.000 íbúa, en nýja sérbýlishverfið mun bjóða upp á sérbýli, par- og raðhús sem mæta mikilli eftirspurn ungs fjölskyldufólks og sérhæfðs starfsfólks á svæðinu. Í hverfinu verður stuðst við nýstárlegar skipulagslausnir á borð við blágrænar ofanvatnslausnir og nútímalegt hverfisskipulag.
Samhliða undirrituninni var opnuð nýja vefsíðan Ásbrú.is, þar sem íbúar, verktakar og uppbyggingaraðilar geta skoðað gagnvirkt kort af svæðinu, gildandi deiliskipulög og framtíðaráform. Fjármálaráðherra fagnaði samstarfinu og sagði sjálfsagt að ríkið nýtti lönd sín til að styðja við öfluga uppbyggingu sveitarfélaga, meðan bæjarstjóri sagði samninginn vera enn einn mikilvæga áfangann í þeirri grósku sem nú ríkir í Reykjanesbæ.
Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.








