Strákarnir syngja saman í Sandgerðiskirkju
Laugardaginn 31. október nk. kl. 14 fær söngsveitin Víkingarnir til sín góða gesti þegar Karlakór Grafarvogs kemur í heimsókn á ferð sinni um Suðurnes.
Piltarnir munu syngja saman og sitt í hvoru lagi létt og skemmtileg lög við allra hæfi í Sandgerðiskirkju.
Kórarnir hafa áður tekið lagið saman, báðir tóku þeir þátt í keppninni Kórar Íslands auk þess sem þeir sungu saman á Kötlumóti karlakóra sem haldið var í Reykjanesbæ.
Karlakór Grafarvogs var stofnaður 2011 af Írisi Erlingsdóttur sem stjórnar kórnum og fagnar því 15 ára afmæli um þessar mundir. Kórinn hefur getið sér gott orð fyrir létta og skemmtilega tónleika þar sem blandað er saman dægurlögum, rokki og hefðbundnum karlakóraperlum.
Söngsveitina Víkinga þarf vart að kynna fyrir heimamönnum eftir rúmlega 30 ára starf en sveitin var stofnuð 1994 og þar fara síungir, síkátir snillingar með sönggleðina að vopni og gleði, vináttu og samveru í fyrirrúmi.
Enginn aðgangseyrir – bara gaman!






