Nína á milli lína í Listasafni Reykjanesbæjar
Nína Sæmundsson og áhrif hennar á ný skáldverk verða í brennidepli á viðburðinum „Nína á milli lína“ sunnudaginn 8. nóvember klukkan 14 í Listasafni Reykjanesbæjar við Duusgötu 2–8 í Keflavík. Þar verður lesið úr leikverki í vinnslu og smásögu sem tengist myndhöggvaranum.
Sigríður Láretta Jónsdóttir, handritshöfundur og leikkona, segir frá og les úr leikverki sínu um Nínu og elskhuga hennar, Inge Epstrup. Fjöllistakonan Ugla Egilsdóttir les með henni.
Sigríður hefur starfað sem leikkona í London og meðal annars komið fram í Shakespeare’s Globe. Hér á landi hefur hún leikið aðalhlutverk í kvikmyndinni Auði og í dansleiksýningunni Harmhljóð horfinna hluta. Hún skrifaði og meðleikstýrði einnig kvikmyndinni Geltu!, sem hlaut Edduverðlaun sem unglingamynd ársins 2025.
Í verkum sínum leitast Sigríður við að segja hinsegin sögur undir áhrifum töfraraunsæis, þar sem raunveruleikinn mætir draumkenndri undirmeðvitund.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir les jafnframt brot úr smásögu sinni Útsýnið af fjórðu hæð og segir frá því hvernig Nína birtist óvænt meðan sagan var í mótun. Þar vakna meðal annars spurningar um hver ákveði hvaða konur megi fljúga, hvers vegna andlitið vanti á styttuna Afrekshug og hvaða möguleika listin geti opnað.
Hólmfríður er Akureyringur, fædd 1985, og stundar ritlistarnám við Háskóla Íslands eftir að hafa undanfarin ár kennt börnum og unglingum. Smásagan birtist fyrst sumarið 2024 í veftímaritinu Stelki.





