Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi
Leikfélag Keflavíkur Stelpuhelgi

Íþróttir

Víðir á toppi 2. deildar í körfu - Reynismenn í 2. sæti
Maciek Baginski í leik með Njarðvík fyrir nokkrum árum gegn Keflavík.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 5. nóvember 2026 kl. 13:00

Víðir á toppi 2. deildar í körfu - Reynismenn í 2. sæti

Suðurnesjaliðin Víðir og Reynir Sandgerði eru í toppsætunum í 2. deild karla í körfubolta karla. Víðismenn sem eru í raun b-lið Keflavíkur eru á toppnum með fullt hús stiga. Reynismenn eru í 2.-3. sæti en þeir unnu Aftureldingu á útivelli í vikunni 78-81.

Hjá Reyni var Njarðvíkingurinn Maciek Stanislav Baginski stigahæstur með 23 stig og 6 fráköst. Magnús Pétursson var með 18 stig.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Afturelding-Reynir S. 78-81 (14-26, 22-11, 24-16, 18-28)

Reynir S.: Maciek Stanislav Baginski 23/6 fráköst, Magnús Pétursson 18, Sigurður Magnússon 10/6 fráköst, Jón Böðvarsson 8/8 fráköst, Jón Eyjólfur Stefánsson 7/5 fráköst, Matthew Ásgeir Arris 7/13 fráköst, Guðbrandur Helgi Jónsson 5/4 fráköst, Jökull Eyfjörð Ingvarsson 2, Viðar Hammer Kjartansson 1, Ísar Freyr Jónasson 0, Kjartan Helgi Steinþórsson 0, Salvar Gauti Ingibergsson 0.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100