Fréttir

Undirbúa útboð vegna nýrrar hafnaraðstöðu í Helguvík
Föstudagur 13. nóvember 2026 kl. 17:04

Undirbúa útboð vegna nýrrar hafnaraðstöðu í Helguvík

Unnið er að hönnun útboðsgagna vegna uppbyggingar nýrrar hafnaraðstöðu og eldsneytisbirgðastöðvar á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.

Farið var yfir stöðu undirbúningsins á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar 12. nóvember undir dagskrárlið um Suðurbakka í Helguvíkurhöfn.

Ekki kemur fram í fundargerðinni hvenær fyrirhugað er að bjóða verkið út eða hefja framkvæmdir. Þar er heldur ekki tilgreindur áætlaður kostnaður við uppbygginguna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100