Fréttir

Hulda María ein af þeim sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðarhöll
Hulda María Agnarsdóttir með skófluna í Laugardal. Mynd/JB.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. nóvember 2026 kl. 09:57

Hulda María ein af þeim sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðarhöll

Njarðvíkingurinn Hulda María Agnarsdóttir var ein meðal ungs afreksíþróttafólks úr landsliðum og félögum sem tók fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðarhöll Íslands í Laugardal. Hulda rauf jörð og henni til aðstoðar var Kristinn Albertsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands.

Hulda sem er ein af efnilegustu körfuboltakonum landsins, aðeins 16 ára og lykilmaður í Bónus-deildarliði Njarðvíkur gekk vasklega til verks eins og alla jafna á vellinum að því er fram kemur á heimasíðu Körfuknattleiksdeildar UMFN.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100