Bæjarstjórn lýsir yfir vantrausti á vinnubrögð Þórkötlu
Bæjarstjórn Grindavíkur lýsir yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Fasteignafélagsins Þórkötlu gagnvart Grindvíkingum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórn Grindavíkur.
„Niðurstaða íbúafundarins í Gjánni 11. nóvember er afdráttarlaus. Grindvíkingar treysta ekki stjórn og stjórnendum Fasteignafélagsins Þórkötlu og hafna endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd. Þeim finnst félagið hvorki hlusta á Grindvíkinga né skilja aðstæður þeirra. Eftir þrjú ár af strjálum samskiptum og einhliða ákvörðunum Fasteignafélagsins Þórkötlu treysta þeir ekki félaginu.
Áætlunin ber þess merki að stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu skorti skilning á verkefninu og raunverulegum aðstæðum Grindvíkinga. Tímasetningin hentar ekki fjölskyldum, kaupverðið tekur ekki mið af ástandi fasteigna og áhættan hvílir á þeim sem fyrstir koma heim.
Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu og vilja ekkert frítt. Þeir vilja að hlustað sé á sjónarmið þeirra en það hefur Fasteignafélagið Þórkatla ekki gert nema að litlu leyti.
Uppkaupin voru björgunaraðgerð í miðjum náttúruhamförum og endurkaupaáætlunin á að vera mikilvægt skref í þeirri aðgerð. Samkvæmt lögum er markmiðið að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavík. Fyrirliggjandi áætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu virðir það markmið að vettugi.
Bæjarstjórn skorar á stjórn og stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu að hlusta á sjónarmið Grindvíkinga og endurskoða áætlunina í samstarfi við þá.
Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga.“
Undir þetta skrifar bæjarstjórn Grindavíkur.





