Fréttir

Hörð gagnrýni á endurkaupaáætlun Þórkötlu á íbúafundi
Frá íbúafundinum í gær. Myndin er skjáskot úr streymi.
Fimmtudagur 12. nóvember 2026 kl. 08:54

Hörð gagnrýni á endurkaupaáætlun Þórkötlu á íbúafundi

Kaupverð, fjárhagsleg áhætta og fyrirhuguð lok hollvinasamninga voru meðal helstu ágreiningsefna á fjölmennum fundi um endurkaupaáætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu í Grindavík í gær. Fundargestir kölluðu eftir meira svigrúmi til heimflutnings og möguleika á að nýta fyrri heimili sín án þess að ráðast strax í kaup. Framkvæmdastjóri félagsins viðurkenndi að viðbrögðin væru önnur en hann hefði vænst og sagði að farið yrði yfir athugasemdirnar.

Forsætisráðuneytið og Þórkatla boðuðu til fundarins þar sem Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins, kynnti áætlun um sölu íbúðarhúsnæðis til Grindvíkinga. Hún byggist á kaupleigu, fjármögnun frá Þórkötlu og tímabundnum skilarétti. Til að hrinda fyrirkomulaginu í framkvæmd þarf lagabreytingu sem stefnt er að því að Alþingi afgreiði fyrir áramót.

Örn lýsti áætluninni sem framhaldi björgunaraðgerðanna sem hófust með kaupum Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í bænum. Markmiðið væri að gera fólki kleift að reyna aftur búsetu í Grindavík, með takmarkaðri skuldbindingu og möguleika á að halda annarri fasteign á meðan.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Margir þeirra sem tóku til máls töldu fyrirkomulagið hins vegar ekki mæta aðstæðum fjölskyldna sem hefðu bundið eigið fé sitt í húsnæði annars staðar. Þeir efuðust jafnframt um verðlagninguna og mótmæltu því að hollvinasamningum og gistiheimildum yrði lokið í janúar.

Járngerður vildi ekki tengjast áætluninni

Strax í upphafi umræðna kom fram ágreiningur um hvernig samráði við Grindvíkinga hefði verið háttað.

Örn hafði í kynningu sinni vísað til samtala við bæjarstjórn og stjórn Járngerðar um útfærslu leiðarinnar. Erla, sem talaði fyrir hönd stjórnar Járngerðar, sagði stjórnina hins vegar hafa óskað formlega eftir því í síðustu viku að nafn félagsins yrði ekki notað í tengslum við áætlunina.

Stjórnin hefði tekið þátt í húsnæðishópi á vegum forsætisráðuneytisins og Þórkötlu en upplifað að takmarkað hefði verið hlustað á sjónarmið hennar. Hún krafðist þess að nafn félagsins yrði tekið úr kynningarefni.

Örn bað stjórn Járngerðar afsökunar og sagði ekki hafa verið ætlunina að gera félagið samábyrgt fyrir áætluninni.

Sama krónutala og Þórkatla greiddi

Samkvæmt áætluninni verður grunnkaupverð eignanna sama krónutala og Þórkatla greiddi fyrir þær á sínum tíma.

Örn sagði þetta verð vera um 12–15 prósentum lægra en verð samkvæmt núverandi kauprétti, sem miðaðist við 95 prósent af uppfærðu brunabótamati. Munurinn stafaði af hækkun brunabótamats frá kaupum félagsins.

Frá kaupverðinu verði dregnar greiddar tjónabætur. Einnig verði tekið tillit til viðgerðarþarfar vegna skemmda sem hafi orðið meðan eignirnar voru í umsjón Þórkötlu. Í þeim tilvikum þar sem félagið hafi ráðist í meiri háttar endurbætur, svo sem þakskipti eða klæðningu húsa, geti kostnaður hins vegar bæst við verðið.

Fundargestir gagnrýndu samanburðinn við hækkað brunabótamat. Þeir sögðu hann ekki svara því hvort kaupverðið endurspeglaði raunverulegt markaðsvirði húsnæðis í Grindavík, þar sem enn ríkti náttúruvá, þjónusta væri önnur en áður og eignir hefðu staðið lítið nýttar um langt skeið.

Bryndís Gunnlaugsdóttir sagði þá sem kæmu fyrst heim taka á sig mestu fjárhagslegu áhættuna og eiga því að njóta mests stuðnings. Hún mótmælti jafnframt orðalagi um að þeir sem flyttu heim stæðu með Grindavík.

„Ég stend með Grindavík en ég verð að hugsa um mína fjárhagslegu áhættu með því og börn sem ég þarf að hugsa um,“ sagði Bryndís.

Gígja Eyjólfsdóttir, annar fundargestur, spurði hvers vegna Grindvíkingar ættu að bera svo stóran hluta áhættunnar af endurreisninni og kallaði eftir verði sem tæki mið af verðrýrnun eignanna.

Fimm prósenta upphafsgreiðsla og þriggja prósenta vextir

Kaupleiguleiðin gerir ráð fyrir að kaupandi greiði að lágmarki fimm prósent kaupverðs í upphafi og Þórkatla fjármagni eftirstöðvar tímabundið. Fjármagnskostnaður verði þrír prósent óverðtryggðir vextir.

Á árinu 2027 á að bjóða sérstaka aðlögun. Þá verði upphafsgreiðslunni skipt þannig að tvö prósent verði greidd við samningsgerð og þrjú prósent í janúar 2028. Fyrstu fjórir mánuðir hvers samnings verði án kaupleigugreiðslna til Þórkötlu.

Árið 2027 verði árleg kaupleiga fjögur prósent af eftirstöðvum kaupverðs, greidd mánaðarlega. Þar af reiknist eitt prósent til lækkunar kaupverðs ef kaupunum verður lokið. Frá janúar 2028 verði hlutfallið fimm prósent, þar af tvö prósent til eignamyndunar.

Þeir sem hefji samning 1. febrúar 2027 greiði því fyrstu mánaðarlegu kaupleiguna í júní. Hægt verði að hefja samning síðar á árinu og njóta sömu fjögurra mánaða án kaupleigugreiðslna.

Samkvæmt kynningunni lýkur samningunum þó í öllum tilvikum 31. janúar 2030. Þá er gert ráð fyrir að kaupendur greiði eftirstöðvar, eftir atvikum með sölu annarrar eignar og hefðbundinni fjármögnun hjá banka.

Skilaréttur á að takmarka áhættuna

Örn lagði mikla áherslu á skilarétt kaupenda. Á samningstímanum geti fólk hætt við kaupin og skilað eigninni án þess að þurfa að tilgreina sérstaka ástæðu.

Þá verði upphafsgreiðsla endurgreidd, ásamt viðbótargreiðslum sem kaupandi hafi sérstaklega lagt inn á kaupverðið. Sá hluti mánaðarlegra kaupleigugreiðslna sem annars myndi reiknast til eignamyndunar verði hins vegar ekki endurgreiddur við skil. Ekki verði heldur greitt fyrir endurbætur sem kaupandi hafi sjálfur ráðist í.

Við skil þurfi eignin að vera í jafn góðu ástandi og við upphaf samnings. Örn staðfesti í umræðunum að sérstök ástandsskoðun færi einnig fram við afhendingu til kaupenda.

Hann sagði fyrirhugað að endurskoða tímalengd skilaréttar áður en tímabilinu lyki. Ef eldsumbrot héldu áfram eða fasteignamarkaður hefði ekki náð jafnvægi væri gert ráð fyrir framlengingu um tvö ár eða lengur eftir þörfum.

Aðspurður hvort bankar hefðu skuldbundið sig til að fjármagna kaupin að tímabilinu loknu sagði Örn að skýr svör lægju ekki fyrir. Það færi meðal annars eftir stöðu eldsumbrota. Ef fjármögnun fengist ekki, til dæmis vegna áframhaldandi eldsumbrota, sagði hann að Þórkatla myndi áfram standa að baki fjármögnun kaupanna.

Lok hollvinasamninga á miðjum skólavetri gagnrýnd

Fyrirhuguð lok hollvinasamninga og gistiheimilda í janúar 2027 vöktu hörð viðbrögð. Samkvæmt upplýsingum Arnar eru hollvinir um 280 og gistiheimildir um 180.

Hann sagði fyrirkomulagið hafa verið tímabundið tilraunaverkefni sem hefði aldrei verið ætlað til fastrar búsetu. Félagið teldi lagalega óvissu um samningana og óábyrgt að halda þeim áfram óbreyttum.

Fundargestir sögðu þessi tímamót setja fólk undir þrýsting til að ákveða á skömmum tíma hvort það gæti fjármagnað endurkaup eða þyrfti að hætta að nýta fyrri heimili sín. Sérstaklega var gagnrýnt að breytingin ætti að taka gildi á miðjum skólavetri.

Dagmar, sem sagðist búa í Grindavík með börn í skóla, lýsti áhyggjum af því hvaða áhrif fyrirkomulagið gæti haft á fjölskyldur og áframhald skólastarfs. Hún spurði hvers vegna ekki væri hægt að bíða til sumars.

Bryndís hvatti félagið sömuleiðis til að gefa fólki svigrúm fram á vor þegar auðveldara væri fyrir fjölskyldur að skipuleggja flutninga og meiri kraftur gæti verið í samfélagsstarfinu.

„Þið viljið að við tökum ákvörðun á erfiðasta tímabilinu okkar í staðinn fyrir að bíða fram á vor,“ sagði hún.

Vilja geta komið heim án tafarlausra kaupa

Nokkrir fundargestir lögðu til að Grindvíkingum yrði áfram heimilt að nýta fyrri eignir sínar gegn greiðslu rekstrarkostnaðar eða hóflegrar leigu meðan óvissa vegna náttúruvár væri.

Pétur Pálsson sagði að fyrst þyrfti að skapa skilyrði fyrir heimkomu fjölskyldna og endurreisn skóla-, íþrótta- og félagsstarfs. Virkt samfélag myndi síðan auka verðmæti annarra eigna í bænum og auðvelda sölu þeirra.

Kristín María Birgisdóttir lagði til að fólk gæti áfram nýtt húsin gegn greiðslu hita, rafmagns og fasteignagjalda. Þannig væri bæði stutt við samfélagið og dregið úr hættu á að húsnæði stæði autt og rýrnaði.

Örn sagði félagið telja kaupleiguleiðina skýrari og heppilegri en almenna útleigu. Hann vísaði meðal annars til ábyrgðar leigusala á ástandi og búnaði húsnæðis og sagði félagið líta á endurkaupaleiðina sem leigu með skýrum möguleika á kaupum.

Þórkatla hyggst þó bjóða tiltekinn fjölda íbúða í fjölbýli til almennrar leigu á markaðskjörum, með samningum til allt að tveggja ára. Fundargestir spurðu hvers vegna sambærilegur kostur stæði ekki til boða í öðrum tegundum húsnæðis.

Telma Sif mótmælti jafnframt lagalegri lýsingu félagsins á hollvinasamningum. Að hennar mati réðist eðli þeirra af innihaldinu fremur en heitinu og þeir væru leigusamningar að efni til. Örn ítrekaði þá afstöðu Þórkötlu að um afnotasamninga væri að ræða.

Hægt að taka fyrri eign frá út árið 2027

Fyrir þá sem vilja bíða með ákvörðun er fyrirhugað að bjóða svonefnda frátekna eign. Þá verði fyrri eign viðkomandi tekin frá út árið 2027.

Tvær útfærslur voru kynntar: annars vegar án afnota og hins vegar með takmörkuðum afnotum, til dæmis til geymslu, gegn því að viðkomandi taki yfir kostnað við hita og rafmagn. Gisting verði þó ekki heimil samkvæmt þeirri leið, að minnsta kosti fyrst um sinn.

Einnig er stefnt að því að Grindvíkingar geti keypt aðra eign en sína fyrri. Örn sagði vonir standa til að byrja mætti að bjóða slíkar eignir í mars eða apríl, þegar skýrari mynd væri komin á áform fyrrverandi eigenda.

Ef fleiri en einn óski eftir sömu eign eigi börn fyrri eigenda að njóta forgangs, síðan altjónseigendur og að lokum verði dregið milli annarra umsækjenda.

Fyrirhugaður hópur sem getur nýtt sér sérkjörin nær bæði til þeirra sem seldu Þórkötlu eign og þeirra sem áttu skráð lögheimili í Grindavík í nóvember 2023 og höfðu þá náð 18 ára aldri. Þar með geti fyrrverandi leigjendur og ungt fólk sem þá bjó í foreldrahúsum fallið undir fyrirkomulagið.

Eva Lind gagnrýndi að ungt fólk sem væri orðið 18 ára núna félli utan þessa aldursviðmiðs. Örn sagði einhvers staðar þurfa að draga mörkin en að mögulega mætti endurskoða þau.

Ástand eigna og tryggingar meðal áhyggjuefna

Spurningar um tjón, viðhald og tryggingavernd voru áberandi í umræðunum.

Örn sagði Þórkötlu hafa lagt áherslu á hita, loftun og varnir gegn leka og raka. Félagið hefði hins vegar ekki sinnt öllu almennu viðhaldi, svo sem görðum og yfirborðsmeðferð tréverks. Hann viðurkenndi að ásýnd eigna hefði látið á sjá.

Ef kaupendur teldu tjónamat ófullnægjandi yrði farið yfir málin með matsmönnum. Nýjar skemmdir sem ekki væru skráðar í fyrirliggjandi tjónaskýrslur þyrfti að tilkynna sérstaklega til Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Telma Sif spurði sérstaklega um tjón sem kynni að hafa aukist vegna viðhaldsleysis. Örn sagði að slík tilvik yrðu skoðuð með viðkomandi aðilum.

Varðandi innbú sem flutt væri aftur inn í bæinn sagði Örn að samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði væri það ekki varið gagnvart tjóni af þeim eldsumbrotum í Sundhnjúkagígaröðinni sem enn stæðu yfir. Hann taldi aðrar tryggingar almennt virkar en tók fram að hann þekkti ekki nákvæmlega skilmála einstakra tryggingafélaga.

Segja eignir ekki fara á brunaútsölu

Örn sagði stefnt að sölu til annarra en Grindvíkinga á síðari hluta árs 2027 eða í byrjun árs 2028. Eignir yrðu settar á markað í áföngum og öðrum kaupendum byðust ekki sömu sérkjör.

Hann ítrekaði að kaupverð Þórkötlu yrði lágmarksverð og hafnaði því að eignir yrðu seldar á brunaútsölu.

Fundargestir kölluðu eftir framlengingu forgangsréttar og spurðu hvort fyrri eigendur gætu gengið inn í viðskipti ef félagið samþykkti síðar lægra verð. Örn sagði ekki hafa verið tekna ákvörðun um framlengingu núverandi forgangsréttar en félagið ætlaði í áætluninni að veita öllum fyrri eigendum forgang að eigin eign, óháð því hvort þeir hefðu upphaflega merkt við réttindi við söluna.

Einnig var kallað eftir niðurfellingu stimpil- og þinglýsingargjalda. Skarphéðinn Steinarsson, verkefnisstjóri Grindavíkurmála í forsætisráðuneytinu og fundarstjóri, sagði að rætt hefði verið um að bæjaryfirvöld beindu áskorun til fjármálaráðuneytisins og þingmanna um lausn á stimpilgjöldunum.

Engin breyting tilkynnt á fundinum

Undir lok fundarins ítrekuðu nokkrir fundargestir spurningu um hvort áætlunin væri opin fyrir breytingum eða aðeins verið að kynna þegar ákveðið fyrirkomulag.

„Ég verð alveg að viðurkenna það að viðbrögðin eru með öðrum hætti en ég átti von á,“ sagði Örn.

Hann sagði að farið yrði yfir það sem fram hefði komið og rætt innan félagsins hvað hægt væri að gera. Engin tiltekin breyting á kjörum eða tímasetningum var þó tilkynnt á fundinum.

Þegar spurt var hvað tæki við ef enginn keypti sagði Örn að félagið hefði ekki skýr svör við því. Það væri að bjóða ákveðna leið og þyrfti að vinna úr viðbrögðunum.

Skarphéðinn sagði víðtækt samráð á borð við það sem viðhaft hefði verið við gerð áhættumats geta átt við um húsnæðis- og búsetumálin. Hann tók þó fram að ákvörðun um áætlunina lægi hjá stjórn Þórkötlu.

Boðað var til tveggja frekari funda í næstu viku og fleiri funda eftir þörfum.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100