Fréttir

Járngerður krafðist þess að vera tekin úr kynningarefni Þórkötlu
Fimmtudagur 12. nóvember 2026 kl. 16:42

Járngerður krafðist þess að vera tekin úr kynningarefni Þórkötlu

Stjórn Járngerðar krafðist þess á kynningarfundi Þórkötlu í Grindavík í gær að nafn félagsins yrði ekki notað í tengslum við endurkaupaáætlun fasteignafélagsins. Stjórnin taldi að takmarkað hefði verið hlustað á sjónarmið hennar við undirbúning áætlunarinnar.

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, vísaði í kynningu sinni til samtala við bæjarstjórn Grindavíkur og stjórn Járngerðar um útfærslu endurkaupaleiðarinnar. Hann nefndi meðal annars breytingar á upphafsgreiðslu, greiðslufresti og endurskoðun skilaréttar.

Þegar opnað var fyrir umræður tók Erla Ólafsdóttir, stjórnarmaður í Járngerði, til máls fyrir hönd stjórnar Járngerðar og mótmælti því hvernig vísað hefði verið til félagsins.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Hún sagði stjórnina hafa setið í húsnæðishópi á vegum forsætisráðuneytisins og Þórkötlu. Í síðustu viku hefði hún sent formlegt bréf þar sem óskað var eftir því að nafn félagsins yrði ekki birt í tengslum við áætlunina.

„Við upplifðum að takmarkað væri á okkur hlustað,“ sagði Erla.

Hún harmaði að nafn Járngerðar hefði engu að síður verið notað í kynningunni og krafðist þess að það yrði tekið úr öllu kynningarefni Þórkötlu hér eftir.

Örn bað stjórnina afsökunar. Hann sagði ekki hafa verið ætlunina að gera félagið samábyrgt fyrir verkefninu.

Síðar á fundinum kallaði Erla eftir því að stjórn Þórkötlu mætti sjálf og svaraði fyrir áætlunina. Örn sagði stjórnarmenn því miður alla stadda erlendis.

Við lok fundarins lá ekki fyrir tilkynning um breytingar á áætluninni. Örn sagði hins vegar að unnið yrði úr athugasemdum og viðbrögðum fundargesta.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100