Fréttir

Deiliskipulag við Njarðvíkurhöfn á lokastigi
Föstudagur 13. nóvember 2026 kl. 17:01

Deiliskipulag við Njarðvíkurhöfn á lokastigi

Reykjaneshöfn er að ljúka vinnu við deiliskipulag fyrir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn. Þetta kemur fram í afgreiðslu atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar á erindi um stækkun lóðar við Sjávargötu 38.

Eigandi fasteignarinnar hefur óskað eftir breytingum á húsnæði og stækkun lóðarinnar. Skipulagsráð hefur samþykkt að senda erindið í grenndarkynningu, en Reykjaneshöfn er landeigandi á svæðinu.

Lóðarstækkun þarf að falla að nýju skipulagi

Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemd við lóðarstækkunina, að því gefnu að hún falli að nýju deiliskipulagi og þeim lóðum sem fyrir eru á svæðinu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Á fundinum, sem haldinn var 12. nóvember, var einnig farið yfir stöðu vinnu við aðal- og deiliskipulag í og upp af Njarðvíkurhöfn.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100