Íþróttir

Frans yfir til Njarðvíkur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. nóvember 2026 kl. 11:09

Frans yfir til Njarðvíkur

Frans Elvarsson, leikmaður Keflavíkur síðustu sextán árin hefur gengið til liðs við nágrannana í Njarðvík og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni auk þess að sinna styrktarþjálfun liðsins.

Frans er upprunalega frá Höfn í Hornafirði og hóf meistaraflokksferil sinn með Sindra áður en hann gekk til liðs við Njarðvík frá Sindra árið 2007, og lék með UMFN allt til ársins 2011 þegar hann fór yfir í Keflavík.

Frans er hefur borið fyrirliðabandið hjá Keflavík síðustu ár og á yfir 500 meistaraflokksleiki á vegum KSÍ. Hann kom lítið við sögu í leikjum Keflavíkur á nýafstaðinni leiktíð nema í síðustu leikjunum.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Fransi tók létt stökk eftir að hafa skorað í úrslitaleik Keflavíkur og HK um sæti í Bestu deildinni í október 2025. VF/pket.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100