Orð eru æði – Háaleitisskóli leggur áherslu á öflugan orðaforða
Sex orð á viku, sameiginlegt átak kennara og markviss orðaforðakennsla eru grunnurinn að þróunarverkefni sem íslenskuteymi Háaleitisskóla hefur hrundið af stað.
Í Háaleitisskóla er hafið metnaðarfullt þróunarverkefni undir heitinu „Orð eru æði“, þar sem markmiðið er að efla orðaforða, lesskilning og tjáningarfærni nemenda með markvissum og fjölbreyttum hætti. Hugmyndin er einföld og vonandi áhrifarík: Nemendur kynnast sex nýjum orðum í hverri viku og vinna með þau á fjölbreyttan hátt í skólastarfinu. Að baki verkefninu stendur íslenskuteymi Háaleitisskóla, skipað kennurunum Auði Evu, Freydísi Kneif, Friðgerði, Halldóru Björk og Sigurbjörgu Ásdísi, ásamt Jurgitu aðstoðarskólastjóra. Teymið hefur sameiginlegan áhuga á að þróa kennsluhætti og finna árangursríkar leiðir til að efla íslenskukunnáttu nemenda. Sérstök áhersla er lögð á að gera tungumálið sýnilegt í daglegu skólastarfi og skapa nemendum fjölbreytt tækifæri til að skilja og nota íslensk orð í merkingarbæru samhengi.
Rannsóknir lagðar til grundvallar
Orðin sem nemendur vinna með eru valin af LÍNO-2 orðalistanum, sem er listi yfir íslenskan námsorðaforða og var þróaður af Sigríði Ólafsdóttur og Auði Pálsdóttur, fræðimönnum við Háskóla Íslands. Listinn byggir á rannsóknum á íslensku ritmáli og inniheldur 2.294 orð sem gegna mikilvægu hlutverki í námi og lesskilningi. Það sem einkennir þessi orð er að þau koma fyrir í fjölbreyttum textum og námsgreinum en eru ekki endilega jafn algeng í daglegu talmáli. Þetta eru orð á borð við áhrif, viðhorf, frumkvæði, greinilega og tillaga. Nemendur þurfa að þekkja og skilja slík orð til að geta tileinkað sér námsefni, skilið flóknari texta og tjáð hugsanir sínar með skýrum hætti. Með því að vinna markvisst með orð af LÍNO-2 listanum er því verið að styrkja mikilvægan grunn að lesskilningi og námsárangri nemenda, óháð því hvaða námsgrein þeir eru að fást við.
Orðin lifna við í skólastarfinu
Í hverri viku eru sex orð tekin fyrir og unnið með þau á fjölbreyttan hátt. Nemendur velta fyrir sér merkingu orðanna, finna samheiti og andheiti, mynda setningar, teikna hugtök og nota orðin í frásögnum, ritun og samtölum. Eitt af því sem gerir verkefnið sérstakt er að orðaforðakennslan er ekki eingöngu á ábyrgð íslenskukennara heldur taka allir kennarar og starfsmenn skólans þátt. Þannig geta nemendur rekist á sömu orðin í stærðfræði, náttúrufræði, samfélagsfræði og öðrum námsgreinum, auk þess sem þau eru notuð í daglegum samskiptum innan skólans. Orðin eru einnig sýnileg á göngum skólans.
Þessi nálgun byggir á þeirri hugmynd að það sé ekki nóg að heyra eða lesa nýtt orð einu sinni til að tileinka sér það. Nemendur þurfa að mæta orðinu aftur og aftur, sjá það í ólíku samhengi og fá tækifæri til að nota það sjálfir. Með reglulegri endurtekningu og virkri notkun festast orðin smám saman í orðaforða nemenda og verða þeim aðgengilegri í námi og daglegu lífi.
Samstarf og fjölbreyttar kennsluaðferðir
Verkefnið hefur jafnframt skapað vettvang fyrir aukið faglegt samstarf innan skólans. Íslenskuteymið undirbýr kennslugögn og hugmyndir að verkefnum sem kennarar geta nýtt og útfært eftir þörfum sinna nemenda. Lögð er áhersla á að verkefnin séu fjölbreytt og aðgengileg öllum nemendum, óháð aldri, tungumálabakgrunni eða námslegri stöðu. Sumir vinna með myndir og einfaldar setningar á meðan aðrir fást við flóknari texta, orðskýringar og verkefni sem reyna á dýpri skilning og ályktunarhæfni. Þannig geta nemendur á ólíkum aldri unnið með sömu orðin en nálgast þau út frá eigin forsendum og getu.
Samstarf heimilis og skóla
Foreldrar og forsjáraðilar eru einnig hvattir til þátttöku. Upplýsingum um orð vikunnar er miðlað heim til nemenda ásamt skilgreiningum og dæmum um notkun þeirra. Með því gefst fjölskyldum tækifæri til að ræða orðin heima, velta fyrir sér merkingu þeirra og nota þau í daglegum samskiptum. Þegar orðaforðavinnan nær út fyrir veggi skólans fá nemendur fleiri tækifæri til að heyra orðin og nota þau í nýju samhengi. Það getur styrkt skilning þeirra, aukið málöryggi og stuðlað að jákvæðu viðhorfi til íslenskunnar.
Lítil skref geta skilað miklum árangri
Íslenskuteymið lítur á „Orð eru æði“ sem langtímaverkefni sem hefur það að markmiði að styrkja málþroska, læsi og námslega stöðu nemenda. Árangur verkefnisins verður metinn reglulega, meðal annars með könnunum á orðaforða og lesskilningi, og niðurstöðurnar nýttar til að þróa kennsluna enn frekar.
Sterkur orðaforði er ein af mikilvægustu forsendum góðs lesskilnings og virkrar þátttöku í námi. Með sameiginlegu átaki vill Háaleitisskóli skapa námsumhverfi þar sem íslenskan er lifandi, sýnileg og aðgengileg öllum nemendum. Sex orð á viku kunna að virðast lítið skref, en þegar allt skólasamfélagið tekur höndum saman geta litlu skrefin orðið að stórum framförum. Eins og heiti verkefnisins gefur til kynna er markmiðið ekki aðeins að kenna ný orð heldur líka að vekja áhuga nemenda á tungumálinu og sýna þeim að orð eru sannarlega æði.










