Kvennakraftur í Akademíunni fyrir nýtt skimunartæki - vilja fá 100 konur í jóga
Fimleikadeild Keflavíkur ætlar að safna saman allt að 100 konum í Akademíunni fimmtudagskvöldið 12. nóvember í sérstakt Yoga Nidra góðgerðarkvöld. Allur aðgangseyrir rennur óskiptur í söfnun fyrir nýtt brjóstaskimunartæki á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Fimleikar eru stærsta kvennaíþróttin á Suðurnesjum og á hverjum degi ganga hundruð stúlkna og kvenna inn um dyrnar hjá deildinni. Þegar söfnunin fyrir nýja skimunartækið á HSS hófst fór strax af stað hugmyndavinna um hvað fimleikadeildin gæti gert til að leggja sitt af mörkum.
„Við erum með hundruð stúlkna í starfi hjá okkur og þetta snertir okkur beint. Við viljum að þær, systur þeirra, mæður, frænkur og allar konur á Suðurnesjum geti sótt mikilvæga heilbrigðisþjónustu hér heima. Við erum stórt kvennasamfélag og það er gaman að geta nýtt þann kraft í eitthvað sem skiptir konur á svæðinu máli. Okkur finnst líka mikilvægt að fimleikadeildin gefi til baka til samfélagsins. Við finnum það aftur og aftur að samfélagið á Suðurnesjum er tilbúið að styðja við okkur, mæta á viðburði, taka þátt í fjáröflunum og standa með starfinu okkar. Þá viljum við líka leggja okkar af mörkum þegar samfélagið þarf á okkur að halda,“ segir Unnur Ýr Kristinsdóttir, formaður Fimleikadeildar Keflavíkur.
Fimleikadeildin hefur fengið Berglindi Skúladóttur jógakennara til liðs við sig og mun hún leiða þátttakendur í gegnum Yoga Nidra. Yoga Nidra er leidd djúpslökun þar sem þátttakendur liggja og fylgja leiðsögn kennara. Engin reynsla af jóga er nauðsynleg og þetta er ekki hefðbundinn jógatími þar sem þarf að kunna stöður eða vera sérstaklega liðugur.
„Okkur langaði að halda viðburð sem væri auðvelt fyrir konur að mæta á, sama hvort þær hafi stundað jóga áður eða ekki. Það þarf í raun ekkert annað en að mæta, koma sér vel fyrir og gefa sér þennan tíma til að slaka á og líta inn á við. Og ef við náum að fylla fimleikagólfið af 100 konum og safna um leið góðri upphæð fyrir skimunartækið, þá náum við bæði að safna fyrir gott málefni og hægja á, sem er mikilvægt í þessu hraða samfélagi sem við búum í,“ segir Unnur.
Viðburðurinn er hluti af framlagi Fimleikadeildar Keflavíkur í tengslum við Bleikan október, þótt kvöldið sjálft fari fram í nóvember. Krabbameinsfélag Suðurnesja verður einnig á staðnum.
Yoga Nidra-kvöldið verður haldið í Akademíunni fimmtudaginn 12. nóvember kl. 20:00. Þátttökugjald er 5.000 krónur og rennur það allt óskipt í söfnunina fyrir nýtt brjóstaskimunartæki á HSS.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Abler eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Þátttakendur eru hvattir til að mæta í þægilegum fötum og taka með sér dýnu, teppi og púða eða annað sem hjálpar þeim að koma sér vel fyrir á gólfinu.





