Safnahelgi
Safnahelgi

Íþróttir

Hulda Ievu stuðningsmaður ársins hjá Þrótti
Fimmtudagur 8. október 2026 kl. 17:08

Hulda Ievu stuðningsmaður ársins hjá Þrótti

Hulda Ievu Jóhannesdóttir var á dögunum útnefnd stuðningsmaður ársins hjá Ungmennafélaginu Þrótti í Vogum. Viðurkenningin var afhent fyrir leik meistaraflokks en Hulda hlaut flest atkvæði í kjöri meðal leikmanna, þjálfara og annarra sem koma að starfsemi félagsins.

Hulda hefur verið meðal dyggustu stuðningsmanna Þróttar og sótt nánast alla heimaleiki liðsins. Stuðningurinn einskorðast þó ekki við heimavöllinn því hún hefur einnig lagt mikið á sig til að komast á útileiki. Hún hefur meðal annars fengið far með öðrum á Selfoss og lengra til að standa við bakið á sínu liði.

Í kveðju frá félaginu er Huldu þakkaður stuðningurinn og tekið fram að viðurkenningin sé verðskulduð.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Þú ert algjörlega frábær stuðningsmaður og félagið má vera stolt af því að eiga þig að,“ segir í kveðjunni.


Bílakjarninn
Bílakjarninn