SAF
SAF

Fréttir

Fundað um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi
Fimmtudagur 15. október 2026 kl. 09:20

Fundað um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness boða til mikilvægs fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 15. október á Hótel Selfossi á Selfossi og stendur á milli kl. 17.00 - 19.00. Fundurinn verður jafnframt sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.

Fundurinn fer fram á mikilvægum tímapunkti. Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Suðurkjördæmi. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Suðurkjördæmi og því er mikilvægt að þau séu rædd af fulltrúum kjördæmisins við þá sem starfa í greininni og þekkja stöðuna af eigin raun.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá verða flutt erindi frá SAF og fulltrúum sveitarstjórnarmála og ferðaþjónustu í kjördæminu.

Erindi flytja:
  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte
  • Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi Konvin Hotel
  • Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Fundarstjórar:  Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands
Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn Suðurkjördæmis um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.
Þátttakendur í pallborðsumræðum:
  • Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingar
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks
  • Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  • Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins
  • Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar
  • Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins
Umræðustjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF

Fundurinn er hluti af fundarröðinni Mótvindur sem SAF standa að ásamt markaðsstofum víða um land. Nánari upplýsingar um fundarröðina má FINNA HÉR.
Bílakjarninn
Bílakjarninn