SAF
SAF

Fréttir

Íslandshús með fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Nónvörðu
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 13. október 2026 kl. 03:58

Íslandshús með fyrstu forsteyptu hraðahindrunina í Nónvörðu

Reykjanesbær er fyrsta sveitarfélag landsins til að taka í notkun nýja forsteypta hraðahindrun frá Íslandshúsum. Hindrunin hefur verið sett niður í götunni Nónvörðu og er afrakstur þriggja ára þróunarvinnu. Verkefnið hlaut viðurkenninguna Nýsköpun ársins á sýningunni Verk og vit 2026.

Þróun hraðahindrunarinnar hófst í janúar 2023 í samtali Íslandshúsa og Reykjanesbæjar um þörfina fyrir endingargóða og staðlaða lausn. Að sögn feðganna Óskars og Brynjars Húnfjörð hjá Íslandshúsum hafa tugir milljóna króna farið í þróunarstarfið.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Þróunarferlið hefur verið ansi langt en það er mjög ánægjulegt að sjá árangurinn kominn í malbikið. Við erum búin að liggja yfir hönnun og þrívíddarteikningum en annað er að sjá þetta verða að veruleika. Ég er virkilega stoltur af útkomunni,“ segir Óskar Húnfjörð, stofnandi Íslandshúsa og hönnuður nýrra lausna fyrirtækisins.

Hann segir vonir standa til að lausnin geti orðið fyrirmynd að stöðluðum hraðahindrunum í sveitarfélögum um allt land.

Hönnuð eftir norskum leiðbeiningum

Óskar segir að fyrirtækið hafi leitað að samræmdum íslenskum forsendum um hvernig hraðahindranir ættu að vera hannaðar en ekki fundið nægilega skýrar leiðbeiningar. Því hafi verið leitað út fyrir landsteinana.

Hönnun hindrunarinnar byggist á rannsóknum og leiðbeiningum norsku Vegagerðarinnar. Unnið var út frá þremur meginþáttum: hæð hindrunarinnar, sveigjunni sem ekið er yfir og lengd hennar miðað við þann hámarkshraða sem gildir á hverjum stað.

Hindrunin í Nónvörðu er hönnuð fyrir götu þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Hún er tíu sentímetra há en lengd bungunnar er miðuð við fyrirhugaðan yfirferðarhraða.

Sama grunnhönnun getur nýst fyrir hraðahindranir við mismunandi hraðatakmarkanir. Lengd sveigjunnar yrði þá breytt þannig að sambærileg yfirferð næðist hvort sem hámarkshraðinn væri 30 eða 50 kílómetrar á klukkustund.

„Hraðahindrun á að vera skilaboð til ökumanns um að líta á hraðamælinn og draga úr hraða. Það á ekki að vera óþægilegt að aka yfir hana á þeim hraða sem hún er hönnuð fyrir,“ segir Óskar.

Kjörorð þróunarinnar hefur því verið „Öryggi án óþæginda“.

Fyrirsjáanleg fyrir strætisvagna og viðbragðsaðila

Við hönnunina var sérstaklega horft til strætisvagna, hópferðabifreiða og annarra stórra ökutækja. Hindrunin á að vera þannig úr garði gerð að farþegar, meðal annars þeir sem sitja aftast í strætisvagni, verði ekki fyrir óþarfa höggum þegar ekið er yfir hana á réttum hraða.

Stöðluð lögun getur einnig skipt miklu máli fyrir viðbragðsaðila. Ef sams konar hindranir verða notaðar víða geta lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn betur metið hvaða álag verður á ökutæki og farþega þegar farið er yfir þær.

„Þegar viðbragðsaðilar koma að staðlaðri hraðahindrun þekkja þeir hana og vita hverju þeir eiga von á. Þeir geta þá metið á hvaða hraða þeir geta farið yfir hana,“ segir Óskar.

Hraðahindrunin er gegnlituð rauð. Hugmyndin er að liturinn og lögunin gefi vegfarendum skýr skilaboð og að ökumenn læri að þekkja hvernig aka skuli yfir hindrunina.

Á að koma í veg fyrir polla og holur

Sérstök áhersla var lögð á að leysa vandamál sem gjarnan myndast við hefðbundnar hraðahindranir. Með tímanum getur malbik slitnað við brúnir þeirra þannig að holur og pollar myndast beggja vegna.

Lausn Íslandshúsa felst meðal annars í 50 sentímetra breiðum innkeyrsluflötum við báða enda hindrunarinnar. Þeir liggja á sama plani og malbikið.

Þannig lendir álagið frá hjólbörðum ökutækja á steyptri einingunni sjálfri en ekki á malbikskantinum framan við hindrunina. Engar hvassar brúnir eru á milli innkeyrsluflatarins og bungunnar.

Hraðahindrunin er sett saman úr forsteyptum einingum sem eru 115 sentímetrar á breidd og fimm metrar á lengd. Einingunum er raðað saman eftir breidd götunnar.

Endurskin steypt inn í yfirborðið

Hvítar yfirborðsmerkingar eru steyptar inn í hverja einingu samkvæmt forskrift Vegagerðarinnar. Þær eru gerðar úr hvítri hágæðasteypu sem blönduð er glerkurli. Glerkurlið endurkastar ljósi frá aðalljósum bifreiða og eykur þannig sýnileika hindrunarinnar í myrkri.

Þar sem bæði rauði liturinn og hvítu merkingarnar ganga inn í steypuna á ekki að þurfa að endurmála hindrunina. Yfirborðsmerkingarnar eiga því að vera viðhaldsfríar.

Undir hindruninni er jafnframt sérstakur stýriprófíll sem heldur einingunum í réttri stöðu. Hann getur einnig nýst sem lagnaleið þvert yfir götuna fyrir ljósleiðara, rafmagn eða aðrar veitulagnir.

Sveitarfélög geta því nýtt framkvæmdina til að útbúa lagnaleið undir götu um leið og hraðahindruninni er komið fyrir.

Framkvæmdin tekur um tvo daga

Einn helsti kostur forsteyptrar lausnar er að lögun og gæði hindrunarinnar ráðast í verksmiðju en ekki af aðstæðum eða vinnubrögðum á hverjum framkvæmdastað.

Brynjar Húnfjörð, framkvæmdastjóri Íslandshúsa, segir mikilvægt að færa hönnunina framar í ferlið og komast hjá því að þurfa að finna upp nýja útfærslu í hvert sinn sem hraðahindrun er gerð.

Forsteyptu einingarnar eiga einnig að stytta þann tíma sem loka þarf götunni. Miðað við reynsluna af uppsetningunni í Nónvörðu telja forsvarsmenn Íslandshúsa að verkið geti tekið um tvo daga frá því framkvæmdir hefjast þar til gatan er opnuð að nýju.

Fyrsti veturinn verður mikilvægt próf

Hraðahindrunin í Nónvörðu verður nú prófuð við raunverulegar íslenskar aðstæður. Fylgst verður með því hvernig hún þolir frost, vatn, salt, nagladekk og snjómokstur.

Samhliða því verður þróunarvinnunni haldið áfram. Á teikniborðinu eru meðal annars upphækkaðar gangbrautir með innsteyptum sebramerkingum, hraðahindranir fyrir götur með 50 kílómetra hámarkshraða og minni upphækkanir fyrir botnlanga og önnur svæði þar sem draga þarf sérstaklega úr umferðarhraða.

Íslandshús er nýsköpunarfyrirtæki með aðsetur á Ásbrú í Reykjanesbæ og hannar og framleiðir forsteyptar steypueiningar. Óskar Húnfjörð og Brynja Sif Ingibersdóttir stofnuðu fyrirtækið árið 2012 og hefur vöruþróun og nýsköpun verið stór þáttur í starfseminni frá upphafi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn