Tuttugu ára uppbygging og ný tækifæri
Kadeco í tuttugu ár
Tuttugu ár eru liðin frá brottför varnarliðsins af Keflavíkurflugvelli. Þar sem áður var lokað varnarsvæði hefur þróast opið samfélag íbúa, fyrirtækja og menntastofnana. Kadeco hefur frá upphafi gegnt lykilhlutverki í þessari umbreytingu og leiðir nú samstarf um áframhaldandi þróun lands við flugvöllinn undir merkjum K64.
Þegar tilkynnt var vorið 2006 að bandaríska varnarliðið myndi hverfa frá Keflavíkurflugvelli blasti mikil óvissa við Suðurnesjamönnum. Fjölmargir höfðu byggt afkomu sína á störfum hjá varnarliðinu eða þjónustu við það. Brottförin hafði því áhrif langt út fyrir girðingar varnarsvæðisins.
Um haustið stóðu íslensk stjórnvöld jafnframt frammi fyrir umfangsmiklu verkefni. Íbúðir, skólar, verkstæði, skrifstofur og önnur mannvirki þurftu að fá nýtt hlutverk. Húsakosturinn og innviðirnir fólu í sér verðmæti og möguleika, en framtíð svæðisins var óskrifað blað.
Þann 24. október 2006 stofnaði íslenska ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Félaginu var falið að koma þeim eignum sem því voru afhentar í skipuleg og hagfelld borgaraleg not, með jákvæð áhrif á nærsamfélagið að leiðarljósi.
Nýtt líf í gömlum húsum
Fyrstu verkefnin voru bæði hagnýt og viðamikil. Tryggja þurfti umsjón og viðhald mannvirkja, greina mögulega nýtingu þeirra og skapa aðstæður fyrir fólk og fyrirtæki til að koma sér fyrir. Svæði sem hafði verið skipulagt utan um þarfir varnarliðsins þurfti að aðlagast íslensku atvinnu- og samfélagslífi.
Menntun varð snemma mikilvægur þáttur í þeirri vegferð. Með tilkomu Keilis árið 2007 fluttu námsmenn og fjölskyldur þeirra á svæðið. Íbúðir sem áður höfðu hýst bandarískar herfjölskyldur urðu heimili nýrra íbúa og kennsla og önnur starfsemi tók við í húsum sem áður höfðu þjónað varnarliðinu.
Svæðið fékk heitið Ásbrú og ný sjálfsmynd tók smám saman að mótast. Fyrirtæki og frumkvöðlar sáu tækifæri í húsnæðinu, staðsetningunni og nálægðinni við flugvöllinn. Hús fengu ný hlutverk og tengsl mynduðust milli fólks sem kom úr ólíkum áttum.
Umbreytingin varð ekki á einni nóttu. Hún byggðist á mörgum ákvörðunum, fjárfestingum og framtaki þeirra sem kusu að setjast að, hefja nám eða byggja upp starfsemi á svæðinu.
Samfélag verður til
Á tveimur áratugum hefur Ásbrú þróast í fjölbreytt íbúða- og atvinnusvæði. Menntun, þjónusta, iðnaður og tæknistarfsemi hafa þar fundið sér stað samhliða daglegu lífi fjölskyldna.
Uppbygging fyrirtækja á borð við Algalíf og gagnavera á svæðinu sýnir hvernig ný starfsemi getur byggst á þeim aðstæðum sem fyrir eru og þróast áfram með fjárfestingu og sérhæfðri þekkingu. Verslun, veitingastaðir, gististarfsemi og íþrótta- og tómstundastarf eiga jafnframt þátt í að gera svæðið að stað þar sem fólk býr, starfar og sækir þjónustu.
Saga Ásbrúar er því einnig saga fólksins sem hefur mótað hverfið. Íbúar, starfsfólk skóla, rekstraraðilar og félagasamtök hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins sem þar hefur vaxið.
Kadeco hefur unnið að því að skapa skilyrði fyrir þessa þróun í samstarfi við sveitarfélög, ríkið, fyrirtæki og fjárfesta. Árangurinn byggist á framlagi margra aðila og vilja þeirra til að sjá möguleika í svæði sem stóð á tímamótum.
Víðara hlutverk og sameiginleg framtíðarsýn
Eftir því sem leið á vegferðina og sölu þeirra húseigna sem Kadeco hafði til umsjónar lauk breyttust verkefni félagsins. Áherslan færðist yfir á langtímaþróun lands við Keflavíkurflugvöll og hvernig nýta mætti betur nálægðina við stærstu alþjóðlegu samgöngugátt landsins.
Haustið 2019 undirrituðu íslenska ríkið, Isavia, Reykjanesbær og Suðurnesjabær viljayfirlýsingu um samstarf að heildstæðri stefnu og framtíðarsýn fyrir nágrenni flugvallarins. Kadeco var falið að leiða þá vinnu.
Úr samstarfinu varð K64, heildstæð efnahags- og skipulagsleg þróunaráætlun Keflavíkurflugvallarsvæðisins, sem kynnt var í mars 2023.
Áætlunin tengir saman atvinnuuppbyggingu, íbúðarbyggð, samgöngur og þjónustu. Fjögur meginsvæði eru í forgrunni: Helguvík–Bergvík, Ásbrú, Aðalgata og forgarður flugstöðvar. Þau gegna ólíkum hlutverkum en mynda saman grunn að fjölbreyttri uppbyggingu í nágrenni flugvallarins.
Með K64 er komin sameiginleg sýn sem getur stutt ákvarðanir sveitarfélaga, fyrirtækja og fjárfesta og hjálpað þeim að vinna að samræmdum markmiðum.
Frá áætlunum til framkvæmda
Verkefni Kadeco í dag snúast meðal annars um að undirbúa land til uppbyggingar, vinna að skipulagi með sveitarfélögum, markaðssetja tækifæri og tengja saman aðila sem geta komið verkefnum í framkvæmd.
Á Ásbrú er áfram unnið að fjölgun íbúða og þróun hverfisins. Þar skiptir máli að húsnæði, þjónusta, samgöngur og samfélagslegir innviðir þróist í takt. Uppbygging hverfis felst jafnt í nýjum heimilum og góðum aðstæðum fyrir daglegt líf, samveru og atvinnu.
Á atvinnusvæðunum felast tækifæri meðal annars í starfsemi sem nýtur góðs af nálægð við flugvöll og höfn, í tæknifyrirtækjum og í iðnaði þar sem samnýting auðlinda og innviða getur skapað verðmæti. Til að þau tækifæri verði að veruleika þarf vandaðan undirbúning og skýra mynd af þörfum fyrirtækja, aðgengi að innviðum og forsendum fjárfestingar.
Næsti kafli
Á tuttugu ára afmæli Kadeco er tilefni til að líta yfir farinn veg. Eignir sem misstu fyrra hlutverk sitt hafa fengið nýtt líf. Fólk hefur eignast heimili, sótt sér menntun og byggt upp fyrirtæki á svæði sem áður var lokað almenningi.
Sú reynsla nýtist í þeim verkefnum sem nú taka við. Fram undan er áframhaldandi vinna við að skapa aðstæður fyrir fjölbreytt atvinnulíf, góð íbúðarhverfi og fjárfestingu sem styrkir Suðurnes til lengri tíma.
Saga Kadeco sýnir hversu miklu máli skiptir að hafa skýra sýn, þolinmæði og getu til að leiða ólíka aðila saman. Næsti kafli byggist á sama grunni og umbreytingin sem hófst árið 2006: samvinnu, trausti og vilja til að ná árangri.






