Samfylkingin fundaði í Suðurnesjabæ: Guðmundur Ari er nýr varaformaður
Guðmundur Ari Sigurjónsson var sjálfkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ í gær.
Guðmundur Ari tekur við af Guðmundi Árna Stefánssyni, sem baðst lausnar frá embætti varaformanns fyrr á árinu og kvaddi flokksstjórn Samfylkingarinnar með ræðu á fundinum í dag. Guðmundur Árni á góðar minningar frá Sandgerði en hann þjálfaði handboltalið bæjarins fyrir fjórum áratugum.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hélt ræðu við upphaf flokksstjórnarfundarins þar sem hún sagði að það væri gott að koma saman í Samkomuhúsinu í Sandgerði á þessum tímapunkti eftir tíðindaríka viku í pólitíkinni. „Bæði á landsvísu og ekki síður í Suðurnesjabæ, þar sem Samfylking vann stórsigur í kosningum í vor og axlaði ábyrgð sína, og vinnur nú að því að ná saman um nýjan meirihluta. Og án þess að fara nánar í saumana á því þá hvetjum við ykkur til góðra verka. Til að leiða Suðurnesjabæ áfram,“ sagði forsætisráðherra og ræddi síðan m.a. stöðuna á vinnumarkaði:
„Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði. Samningar halda með samstilltu átaki. Þrátt fyrir olíuverðshækkanir að utan. Og standi allir við sitt er ljóst í mínum huga að þetta verður vendipunktur í baráttunni við verðbólguna. Við hvikum hvergi frá hallalausum fjárlögum. Þannig hættum við að reka ríkið á yfirdrætti. Þrátt. fyrir viðstöðulausan þrýsting frá minnihlutanum á Alþingi um afturhvarf til óstjórnar í efnahagsmálum – með kröfum um allt í senn: að auka útgjöld, lækka skatta og hverfa frá erfiðum ákvörðunum um hagræðingu.
En við bognum ekki – heldur gerum það sem við sögðumst ætla að gera: Við lögum ríkisfjármálin,“ sagði Kristrún en ræðu hennar í heild má sjá hér.







