Beint frá fundi Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ: Ræða forsætisráðherra
Samfylkingin heldur haustfund flokksstjórnar í Samkomuhúsinu í Sandgerði í Suðurnesjabæ laugardaginn 10. október. Kristrún Frostadóttir, formaður flokksins og forsætisráðherra, flytur ræðu. Í framhaldinu ræða ráðherrar Samfylkingarinnar árangur ríkisstjórnarinnar til þessa og áherslur fram undan. Þá sitja þingmenn flokksins fyrir svörum fundargesta.
Val á nýjum varaformanni verður meðal helstu verkefna fundarins. Guðmundur Árni Stefánsson óskaði fyrr á árinu eftir að láta af embættinu og mun nýr varaformaður gegna því fram að landsfundi næsta vor. Samkvæmt fundarboðinu hefur Guðmundur Ari Sigurjónsson einn gefið kost á sér en framboðsfrestur rennur út klukkan 14 á laugardag. Verði aðeins einn í framboði verður hann sjálfkjörinn.







