Þjóðminjasafnið safnar frásögnum tengdum Grindavík
Þjóðminjasafn Íslands safnar nú frásögnum af reynslu og upplifun fólks af jarðhræringunum á Reykjanesskaga frá árinu 2020. Söfnunin fer fram í samstarfi við Grindavíkurbæ og Minja- og sögufélag Grindavíkur. Grindvíkingar og öll þau sem tengjast Grindavík og atburðum síðustu ára eru hvött til að taka þátt.
Sérstök áhersla er lögð á tímabilið fyrir og eftir rýmingu Grindavíkur 10. nóvember 2023. Markmiðið er að varðveita fjölbreyttar heimildir um þá sérstæðu atburði sem samfélagið hefur gengið í gegnum og tryggja að reynsla fólks verði hluti af sögu Grindavíkur.
Í spurningaskrá safnsins er meðal annars spurt um tengsl fólks við bæinn, jarðskjálfta og eldgos, rýminguna og tímann eftir hana. Einnig er leitað eftir frásögnum af viðbrögðum samfélagsins og sýn fólks á stöðuna í Grindavík í dag.
Spurningaskráin er ítarleg en þátttakendur þurfa ekki að svara öllum spurningum. Hægt er að velja þær sem höfða til hvers og eins og vista svör til að halda áfram síðar.
Nánar er fjallað um söfnun heimildanna á vef Grindavíkurbæjar, þar sem einnig má nálgast spurningaskrá Þjóðminjasafns Íslands.






