Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Næsti kafli Suðurnesja
Þriðjudagur 13. október 2026 kl. 03:40

Næsti kafli Suðurnesja

Frá umbreytingu fyrrum varnarsvæðis að nýjum tækifærum fyrir fyrirtæki og íbúa.

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, horfir til framtíðar þar sem fjölbreytt atvinnulíf, ný heimili og öflugt samfélag vaxa saman.

Á tuttugu árum hafa verkefni Kadeco tekið miklum breytingum. Í upphafi var viðfangsefnið að koma húsnæði og öðrum eignum á fyrrum varnarsvæðinu í borgaralega notkun. Nú leiðir félagið samstarf um þróun lands við Keflavíkurflugvöll, með atvinnuuppbyggingu, fjárfestingar og framtíð byggðar á Suðurnesjum í sjónmáli.

Sameiginlega þróunaráætlunin K64 markar þá sýn. Þar mætast alþjóðlegar tengingar flugvallarins og tækifæri til að byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf. En hvernig verða áætlanir að fyrirtækjum, störfum og heimilum? Og hvað á fólk á Suðurnesjum að fá út úr næsta kafla?

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Tækifærin þurfa að verða framkvæmanleg

Kadeco stendur á tuttugu ára tímamótum. Hvert á félagið að stefna á næstu árum?

„Við viljum að fleiri fyrirtæki sjái Suðurnes sem stað þar sem þau geta byggt upp starfsemi til langs tíma. Til þess þurfum við að geta svarað spurningum þeirra um land, skipulag og innviði og hjálpað þeim að finna réttu samstarfsaðilana.

Verkefni okkar er að gera tækifærin skýr og vinna að því að þau verði framkvæmanleg. Árangurinn birtist síðan í fyrirtækjum sem fjárfesta hér og fólki sem finnur sér störf og framtíð á svæðinu.“

Hvernig hefur hlutverk Kadeco breyst frá stofnun?

„Upphaflega snerist starfið að miklu leyti um að koma húsnæði og öðrum eignum í borgaralega notkun. Það var gríðarlegt verkefni sem margir lögðu hönd á plóg við.

Í dag horfum við á stærra svæði og lengra fram í tímann. Við leiðum samstarf um landþróun, undirbúning atvinnusvæða og íbúðarbyggðar og kynnum tækifærin fyrir fyrirtækjum og fjárfestum. Sú vinna byggir á samstarfi ríkisins, Isavia og sveitarfélaganna.“

Hvað á íbúi á Suðurnesjum að fá út úr þessari vinnu?

„Fleiri möguleika. Ungt fólk á að geta séð fyrir sér fjölbreytt störf hér heima og fyrirtæki eiga að geta vaxið á svæðinu. Samhliða þarf að vera hægt að eignast heimili og njóta góðrar þjónustu.

Þess vegna verður atvinnuuppbygging að haldast í hendur við húsnæði, samgöngur og samfélagslega innviði. Við þurfum að hugsa þetta saman frá upphafi.“

Suðurnes á alþjóðlegum markaði

Hvers vegna leggið þið áherslu á alþjóðlega markaðssetningu?

„Fyrirtæki sem leita að nýrri staðsetningu bera saman marga valkosti. Við þurfum að vera sýnileg þar sem þær ákvarðanir eru undirbúnar og geta útskýrt hvaða starfsemi hentar hér.

Með Íslandsstofu og öðrum samstarfsaðilum kynnum við svæðið og byggjum upp tengsl. Það sem skiptir máli er eftirfylgnin: að skilja þarfir fyrirtækis og sjá hvort hér séu raunhæfar forsendur fyrir verkefninu.“

Hvaða tækifæri viljið þið sækja?

„Ég sé spennandi möguleika í starfsemi sem nýtir alþjóðlegar tengingar svæðisins, sérhæfðri framleiðslu og samstarfi um betri nýtingu auðlinda. Þar geta meðal annars verið flugvallartengd þjónusta, líftækni, matvælaframleiðsla og tæknistarfsemi.

Við þurfum að velja verkefni af kostgæfni og horfa til þess hvernig þau styrkja atvinnulífið sem fyrir er.“

Hvað þarf helst að ganga upp til að þessi tækifæri verði að veruleika?

„Fyrirsjáanleiki. Fyrirtæki þurfa að vita hvaða skref bíða þeirra og hver ber ábyrgð á hverju. Skipulag, orka og aðrir innviðir þurfa að vera skoðuð út frá hverju verkefni.

Okkar hlutverk er að leiða þá vinnu áfram með viðeigandi aðilum. Við eigum að vera metnaðarfull og jafnframt skýr um hvað er tilbúið og hvað þarf að undirbúa.“

Ásbrú vex með atvinnulífinu

Ný störf og ný heimili þurfa að fylgjast að. Á Ásbrú er unnið að þróun hverfis þar sem íbúðir, þjónusta og útisvæði styðja daglegt líf. Nýr vefur, asbru.is, gefur yfirsýn yfir uppbyggingarreiti og framtíðaráform.

Suðurbrekka er hluti þeirrar heildar. Í september undirrituðu ríkið, Reykjanesbær og Kadeco viljayfirlýsingu um hraðari undirbúning sérbýlauppbyggingar þar. Næstu skref og tímasetningar ráðast af rannsóknum, skipulagi og innviðum.

Daglegt líf gefur uppbyggingunni gildi

Gildi góðs hverfis kemur fram í hversdagslífinu: að geta gengið út, hreyft sig, sótt þjónustu og hitt annað fólk. Íbúðir, þjónusta og útisvæði þurfa að skapa umgjörð um það líf.

Þegar íbúum fjölgar skiptir jafnframt máli að hlúa að þeim stöðum og tengslum sem gefa hverfinu karakter. Sú hugsun á að fylgja uppbyggingu Ásbrúar, svo ný heimili verði hluti af samfélaginu sem fyrir er.

Þar mætast líka markmiðin um næsta kafla Suðurnesja: fjölbreytt störf, tækifæri fyrir fyrirtæki og heimili þar sem fólk sér framtíð sína.

Kynntu þér tækifærin

Fyrirtæki og fjárfestar geta kynnt sér þróunarsvæðin á kadeco.is og haft samband við [email protected].

Upplýsingar um framtíð Ásbrúar og framvindu uppbyggingar eru á www.asbru.is.

Bílakjarninn
Bílakjarninn