Skilarétturinn tryggir ekki endurgreiðslu allra útgjalda
Þeir sem nýta sér fyrirhugaða kaupleiguleið Þórkötlu geta samkvæmt kynningu félagsins hætt við kaupin og fengið upphafsgreiðslu sína endurgreidda. Mánaðarlegar kaupleigugreiðslur og kostnaður við eigin endurbætur verða hins vegar ekki endurgreidd við skil.
Skilarétturinn var eitt helsta atriðið í kynningu Arnar Viðars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Þórkötlu, á íbúafundi í Grindavík.
Hann sagði kaupanda ekki þurfa að tilgreina sérstaka ástæðu fyrir því að hætta við. Markmiðið væri að fólk gæti reynt búsetu í Grindavík og átt skýra útleið ef aðstæður breyttust eða því litist ekki á áframhaldið.
Samkvæmt kynningunni verður að lágmarki fimm prósenta upphafsgreiðsla endurgreidd við skil. Hafi kaupandi greitt sérstaklega meira inn á kaupverðið fæst það fé einnig til baka.
Annað gildir um mánaðarlegu kaupleiguna. Hluti hennar á að reiknast til lækkunar kaupverðs ef viðskiptunum er lokið, en sá ávinningur fellur ekki til ef eigninni er skilað.
Þórkatla mun heldur ekki greiða fyrir breytingar sem kaupandi ákveður sjálfur að ráðast í. Örn nefndi eldhúsinnréttingu sem dæmi um slíkan kostnað.
Við skil þarf eignin jafnframt að vera í jafn góðu ástandi og við upphaf samnings. Sérstök ástandsskoðun á að fara fram við afhendingu til kaupanda.
Samningunum er ætlað að ljúka 31. janúar 2030. Örn sagði þó að tímalengd skilaréttar yrði endurskoðuð áður og gert ráð fyrir framlengingu ef eldsumbrot eða aðstæður á fasteignamarkaði kölluðu á það.





