Fréttir

Vogar styrkja söfnun fyrir brjóstaskimunartæki
Laugardagur 14. nóvember 2026 kl. 01:23

Vogar styrkja söfnun fyrir brjóstaskimunartæki

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 27. október að veita 300 þúsund króna styrk til söfnunar vegna kaupa á brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Til grundvallar afgreiðslunni lá kynningarbréf Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi um söfnunina.

Í bókun bæjarráðs er framtakinu fagnað og lögð áhersla á að konur á Suðurnesjum geti sótt brjóstaskimun í heimabyggð. Bæjarráð telur að bætt aðgengi geti auðveldað konum að nýta sér skimun og stuðlað að aukinni þátttöku. Með styrknum vilji sveitarfélagið leggja sitt af mörkum til að þjónustan verði að veruleika.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100