Fréttir

Tæplega þúsund nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Laugardagur 14. nóvember 2026 kl. 07:50

Tæplega þúsund nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Alls eru 997 nemendur í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á starfsárinu 2026–2027. Við skólann starfa 52 einstaklingar í 38 stöðugildum.

Þetta kom fram í kynningu Haraldar Árna Haraldssonar skólastjóra á fundi menntaráðs Reykjanesbæjar 13. nóvember. Þar fór hann yfir starfsemi skólans og helstu upplýsingar um yfirstandandi starfsár.

Menntaráð fagnaði nýsköpun í skólastarfinu og vísaði meðal annars til viljayfirlýsingar um samstarf Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, Norðuróps og Þjóðaróperunnar. Þá tekur skólinn þátt í Erasmus+ verkefni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Óska eftir greinargerð um menntun tónlistarkennara

Á fundinum komu jafnframt fram áskoranir varðandi menntun tónlistarkennara. Menntaráð óskaði eftir greinargerð frá skólastjóra um málið. Í fundargerðinni er ekki nánar greint frá því í hverju þær áskoranir felast.

Ráðið leggur áherslu á að standa vörð um öflugt tónlistarnám og efla tengsl skólans við grunnskóla og aðrar menningarstofnanir bæjarins. Í afgreiðslu þess er bent á gildi listnáms fyrir sköpun, sjálfstjáningu, aga og félagsfærni barna og ungmenna, auk mikilvægis þess fyrir menningarlíf bæjarins.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100