Fréttir

Ekki haldið áfram með tillögu um gjaldfrjálsa frístund
Laugardagur 14. nóvember 2026 kl. 05:48

Ekki haldið áfram með tillögu um gjaldfrjálsa frístund

Menntaráð Reykjanesbæjar telur ekki tímabært að halda áfram vinnu við tillögu um gjaldfrjáls frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk grunnskóla. Samkvæmt kostnaðarmati yrðu árleg áhrif á fjárhag bæjarins 69,4 milljónir króna ef dvalargjöld yrðu felld niður en áfram greitt fyrir fæði. Yrðu bæði gjöldin felld niður næmi fjárhæðin 79,6 milljónum króna.

Málið var tekið fyrir á fundi menntaráðs 13. nóvember. Í afgreiðslu ráðsins kemur fram að erfitt sé að réttlæta viðbótarfjármagn vegna niðurfellingar gjaldanna miðað við núverandi fjárhagsáætlun.

Um 90 prósent barna í 1. bekk nýta nú þegar frístundaþjónustu. Þá stendur yfir vinna við að færa þjónustuna frá grunnskólunum til frístundamiðstöðva.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framsókn vildi vinna tillöguna áfram

Díana Hilmarsdóttir fulltrúi Framsóknar lýsti vonbrigðum með niðurstöðuna í bókun. Hún benti á að samkvæmt kostnaðarmati hagdeildar hefði niðurfelling dvalargjalda frá 1. ágúst 2027 kostað undir 30 milljónum króna það sem eftir væri ársins, með áframhaldandi gjaldtöku fyrir síðdegishressingu.

Díana taldi matið gefa tilefni til að vinna tillöguna áfram við gerð fjárhagsáætlunar 2027. Markmiðið væri að létta undir með barnafjölskyldum og jafna tækifæri barna til þátttöku. Þá gæti gjaldfrjáls frístund sérstaklega nýst börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn við að efla íslenskukunnáttu og félagsleg tengsl.

Menntaráð tekur undir að fjárhagur fjölskyldna eigi ekki að hindra þátttöku barna í frístundastarfi. Ráðið vill fylgjast grannt með þátttökunni og kveðst tilbúið að grípa inn í ef ástæða þykir til.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100