Fréttir

Vilja gera ráð fyrir langtímaveikindum í fjárhagsáætlun menntasviðs
Sunnudagur 15. nóvember 2026 kl. 06:52

Vilja gera ráð fyrir langtímaveikindum í fjárhagsáætlun menntasviðs

Menntaráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að gert verði ráð fyrir kostnaði vegna langtímaveikinda í fjárhagsáætlun menntasviðs fyrir næsta ár. Það sé forsenda þess að áætlunin endurspegli raunverulega stöðu sviðsins.

Þetta kemur fram í afgreiðslu ráðsins eftir kynningu á mælaborði menntasviðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026. Helgi Arnarson sviðsstjóri kynnti niðurstöðurnar á fundi ráðsins 13. nóvember.

Ráðið vill að fylgst verði náið með þróun launakostnaðar, veikindahlutfalls og kostnaðar vegna langtímaveikinda. Jafnframt óskar það eftir reglulegum upplýsingum um skýringar á frávikum og fyrirhuguð viðbrögð. Ekki koma fram tölur um þessa kostnaðarliði eða veikindahlutfall í fundargerðinni.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Vilja mæla læsi, líðan og skólasókn

Menntaráð fagnaði sterkum niðurstöðum í starfsánægju og meðmælastuðli starfsfólks. Stöðugleiki og vellíðan starfsfólks eru mikilvægar forsendur gæða í skólastarfi.

Ráðið vill einnig að mælaborðið verði þróað áfram með skýrum mælikvörðum á skólasókn, læsi, líðan nemenda, námsframvindu og aðgengi að stuðningi. Þær upplýsingar eigi að nýtast við stefnumótun, forgangsröðun og eftirfylgni í skólamálum.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100