Þórkatla útilokar brunaútsölu en hefur ekki skýr svör ef enginn kaupir
Kaupverð Þórkötlu verður lágmarksverð þegar félagið selur eignir til annarra en Grindvíkinga, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Aðspurður hvað gerðist ef enginn keypti sagði hann hins vegar ekki liggja fyrir skýr svör.
Verðlagning fasteigna var meðal helstu ágreiningsefna á kynningarfundi um endurkaupaáætlun Þórkötlu í Grindavík í gær.
Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri félagsins, sagði stefnt að því að hefja sölu til annarra en Grindvíkinga á síðari hluta árs 2027 eða í byrjun árs 2028. Eignir yrðu settar á markað í áföngum, fremur en að hundruð þeirra færu samtímis í sölu.
Öðrum kaupendum byðust ekki sömu fjármögnunar- og skilaréttarkjör og fyrirhugað er að veita Grindvíkingum. Kaupverð Þórkötlu yrði engu að síður algjört lágmarksverð.
Örn sagðist binda vonir við að selja mætti eignir á hærra verði, að því gefnu að eldsumbrot hægðu á sér og eftirspurn myndaðist. Hann vísaði meðal annars til mögulegs áhuga á einbýlis- og raðhúsum.
Fundargestir efuðust um að fyrirhugað verð endurspeglaði markaðsaðstæður í Grindavík. Einnig var lýst ótta við að eignir yrðu síðar seldar ódýrar til annarra eftir að réttindi fyrri eigenda hefðu runnið út.
Örn hafnaði því að til stæði að setja eignir á brunaútsölu.
Dagmar spurði hvað félagið hygðist gera ef enginn gerði tilboð eða keypti. Örn viðurkenndi að spurningunni hefði ekki verið svarað og sagði ekki liggja fyrir skýr svör. Félagið væri að bjóða ákveðna leið og þyrfti að vinna úr athugasemdum fundargesta.





