Nær jafnmörg ungmenni í félagsmiðstöðvar á rúmum tveimur mánuðum og allt síðasta skólaár
Alls sóttu 615 ungmenni í 8.–10. bekk félagsmiðstöðvastarf í Reykjanesbæ að minnsta kosti einu sinni frá 1. september til 11. nóvember. Til samanburðar voru þau 620 á öllu síðasta skólaári.
Tölurnar komu fram við umfjöllun velferðarráðs um fundargerð Samtakahópsins á fundi ráðsins 12. nóvember. Ráðið fagnar aukinni þátttöku og vill efla félagsmiðstöðvastarf sem þátt í forvörnum og stuðningi við farsæld barna og ungmenna.
Stefna að félagsmiðstöðvastarfi við alla grunnskóla
Í afgreiðslu ráðsins kemur fram að góð þátttaka eftir opnun félagsmiðstöðva við Akurskóla og Stapaskóla bendi til þess að nálægð við skóla skipti máli fyrir þátttöku ungmenna.
Markmiðið er að bjóða upp á öflugt félagsmiðstöðvastarf við alla grunnskóla Reykjanesbæjar.





