Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Nýr FIFA-völlur rís á Ásbrú
Nýr 20 x 40 metra knattspyrnuvöllur rís við Háaleitisskóla á Ásbrú. FIFA og KSÍ greiða fyrir efni, flutning og uppsetningu vallarins. Reykjanesbær og knattspyrnudeild Keflavíkur sjá um lóðina, jarðvegsvinnu og frágang umhverfis.
Þriðjudagur 24. nóvember 2026 kl. 17:33

Nýr FIFA-völlur rís á Ásbrú

Nýr knattspyrnuvöllur verður settur upp við Háaleitisskóla á Ásbrú. Sameiginleg umsókn Knattspyrnudeildar Keflavíkur, Háaleitisskóla og Reykjanesbæjar var önnur tveggja umsókna sem valdar voru úr 47 umsóknum um FIFA Arena-völl á Íslandi.

Stjórn KSÍ samþykkti tillögu matsnefndar um að velja verkefnið á Ásbrú. Hinn völlurinn verður í Norðurþingi. FIFA Arena er alþjóðlegt verkefni FIFA sem miðar að því að auka aðgengi barna og ungmenna að knattspyrnu með uppsetningu minni valla sem nýtast bæði til æfinga og frjáls leiks.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Það er mikil viðurkenning fyrir okkur og okkar samstarfsaðila að verkefnið hafi verið valið úr fjölda umsókna. Við hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur höfum undanfarin ár lagt okkur fram um að efla knattspyrnustarf á Ásbrú, meðal annars með gjaldfrjálsum námskeiðum fyrir börn í hverfinu,“ segir Ragnar Aron Ragnarsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Fjárfesta í samfélaginu til framtíðar

Barnafjölskyldum á Ásbrú hefur fjölgað á undanförnum árum og nemendum í Háaleitisskóla sömuleiðis. Í umsókninni kom fram að þátttaka barna í íþróttastarfi væri minni á Ásbrú en í öðrum hverfum Reykjanesbæjar og að þar vantaði aðgengilega aðstöðu til knattspyrnuiðkunar. Keflavík hefur undanfarin ár boðið upp á gjaldfrjáls knattspyrnunámskeið fyrir börn í hverfinu og hyggst nýta nýja völlinn til að halda því starfi áfram.

„Við teljum að íþróttafélög eigi að gegna stærra hlutverki í samfélaginu en að halda úti hefðbundnu íþróttastarfi. Fótboltinn hefur einstakan kraft til að sameina fólk, óháð tungumáli, uppruna og efnahag. Með tilkomu vallarins og góðu samstarfi við Reykjanesbæ og Háaleitisskóla erum við ekki aðeins að bæta íþróttaaðstöðu heldur fjárfesta í samfélaginu til framtíðar,“ segir Ragnar.

FIFA Arena-völlur á Ásbrú skapar mikilvæga og varanlega aðstöðu til hreyfingar og knattspyrnuiðkunar. Slík aðstaða styður jafnframt við áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnustarfs á svæðinu, ásamt því að efla félagslega þátttöku og sterkari tengsl milli íbúa óháð aldri, uppruna eða bakgrunni. Með samstarfi sveitarfélagsins, skólans og íþróttafélags verður völlurinn vettvangur fyrir þátttöku, forvarnir og heilbrigðan lífsstíl. Þannig styrkir verkefnið samfélagsauð, jöfn tækifæri og jákvæða þróun Ásbrúar til langs tíma.

Völlurinn nýtist líka utan skólatíma

FIFA og KSÍ greiða fyrir efni, flutning og uppsetningu vallarins. Reykjanesbær og knattspyrnudeildin sjá um lóðina, jarðvegsvinnu og frágang umhverfis vallarins. Í verkefnislýsingunni er jafnframt gert ráð fyrir aðkomu bæjarins að framtíðarviðhaldi.

Næsta skref er að undirbúa lóðina í samvinnu við Reykjanesbæ. Gert er ráð fyrir að börn og ungmenni geti nýtt völlinn bæði á skólatíma og eftir að skóladegi lýkur.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100