Joacim Holtan gengur til liðs við Keflavík
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við norska framherjann Joacim Holtan.
Holtan er 28 ára og skoraði 16 mörk á sínu fyrsta tímabili á Íslandi. Hann varð markahæstur í Lengjudeildinni og átti stóran þátt í því að Afturelding vann deildina og tryggði sér sæti í Bestu deildinni.
Áður en Holtan kom til Íslands lék hann meðal annars með Bryne, Start, Kongsvinger og Egersund. Hann á einnig að baki leiki í efstu deild Noregs með Haugesund.





