Fréttir

Atvinnu- og hafnarráð vill boða fleiri fyrirtæki til samtals
Fimmtudagur 26. nóvember 2026 kl. 11:01

Atvinnu- og hafnarráð vill boða fleiri fyrirtæki til samtals

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hyggst verja meiri tíma í samtal við fyrirtæki á næstu misserum. Alexander Ragnarsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði frá áformunum á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 17. nóvember 2026. Hugmyndin er að fá fulltrúa fyrirtækja á fund ráðsins til að ræða stöðuna og kynna hvað þeir hafa á prjónunum.

Ráðið lagði jafnframt áherslu á áframhaldandi samstarf við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi. Hjörtur Magnús Guðbjartsson bæjarfulltrúi Samfylkingar tók undir að viðhalda þyrfti samtali bæði við samtökin og einstök fyrirtæki.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100