Dubliner
Dubliner

Fréttir

GeoSilica hlýtur nýsköpunarverðlaun Samorku fyrir vinnslu kísils úr jarðhitavökva
Fimmtudagur 26. nóvember 2026 kl. 11:45

GeoSilica hlýtur nýsköpunarverðlaun Samorku fyrir vinnslu kísils úr jarðhitavökva

GeoSilica hlaut nýsköpunarverðlaun Samorku 2026 fyrir GeoStep-aðferðina. Með henni er kísill unninn úr jarðhitavökva og nýttur sem hráefni í söluvörur. Vinnslan dregur jafnframt úr kísilútfellingum og viðhaldsþörf í jarðvarmavirkjunum.

„GeoStep-aðferð GeoSilica er framúrskarandi dæmi um íslenska nýsköpun sem byggir á þekkingu og reynslu úr jarðvarmageiranum,“ segir í rökstuðningi dómnefndar.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Í tilkynningu GeoSilica kemur fram að margra ára hugmyndavinna, rannsóknir og þróun liggi að baki aðferðinni. Fyrirtækið segir viðurkenninguna hafa mikla þýðingu og þakkar þeim sem hafa tekið þátt í þróuninni og stutt fyrirtækið í gegnum árin.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100