LHG 22-29 júní
LHG 22-29 júní

Íþróttir

Jafnt í Njarðvík
VF-myndir: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 23. júní 2026 kl. 21:38

Jafnt í Njarðvík

Grindavík/Njarðvík og Víkingur skyldu jöfn, 1-1, í Bestu deild kvenna á JBÓ vellinum í Njarðvík í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik mættu heimakonur öflugar til leiks í þeim síðari. Á 58. mínútu dró til tíðinda. Hildur Katrín Snorradóttir fékk þá boltann fyrir utan vítateig og lagði hann snyrtilega á Maci Nicole Teater, sem lét vaða við vítateigsbogann og skoraði.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Grindavík/Njarðvík hélt áfram að sækja og virtist líklegra til þess að bæta við marki. En gegn gangi leiksins slapp Freyja Stefánsdóttir ein í gegnum vörn heimakvenna og setti boltann í stöngina og inn, og tryggði Víkingum dýrmætt stig.

Grindavík/Njarðvík - Víkingur (1-1) // Besta deild kvenna 23. júní 2026

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar