Aðsent

Samtal skapar traust
Föstudagur 17. júlí 2026 kl. 09:29

Samtal skapar traust

Traust verður ekki til af sjálfu sér. Það byggist upp í samtali, með því að hlusta, útskýra og sýna ólíkum sjónarmiðum virðingu.

Á þessum fyrsta mánuði nýs kjörtímabils hefur eitt komið mér sérstaklega á óvart sem forseta bæjarstjórnar. Það eru öll samtölin við íbúa Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Stundum hringir einhver. Stundum berst tölvupóstur. Stundum stoppar íbúi mig á göngu minni um bæinn, á viðburðum eða þegar við hittumst fyrir tilviljun og vill ræða málefni sem honum eru hugleikin. Stundum snúast samtölin um stór skipulagsmál, stundum um litlu hlutina sem gera hverfið betra. Þessi samtöl eiga öll eitt sameiginlegt. Íbúar Reykjanesbæjar vilja finna að á þá sé hlustað.

Ég hef líka lært að bestu samtölin eru oft þau sem ekki eru skipulögð. Þau verða þegar íbúi hefur samband, sendir skilaboð eða hringir vegna máls sem skiptir hann máli. Fyrir mér er það traustsyfirlýsing og því trausti viljum við standa undir.

Traust byggist upp þegar íbúar upplifa að þeir geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri og að tekið sé mark á sjónarmiðum þeirra, jafnvel þótt niðurstaðan verði ekki alltaf sú sem þeir óskuðu eftir.

Við sem höfum fengið það traust að sitja í bæjarstjórn og berum ábyrgð á að taka ákvarðanir. Við megum aldrei gleyma því að á bak við hverja fundargerð, hverja framkvæmd og hverja ákvörðun eru íbúar, fjölskyldur og samfélag sem á skilið að rödd þess fái að heyrast.

Við teljum að góð stjórnsýsla byrji ekki á svörum. Hún byrjar á því að hlusta.

Á síðustu vikum höfum við fengið að upplifa hversu mikilvæg samskipti við íbúa eru. Það hefur komið fram í umræðunni um Baugholtsróló, í skipulagsmálum við Hafnargötu og í endurmati á áformum um Akademíureit. Málin eru ólík, en þau minna okkur öll á sömu staðreynd. Góðar ákvarðanir verða til þegar við gefum okkur tíma til að hlusta, skoða málin frá fleiri en einni hlið og eiga opið samtal við íbúana.

Þetta snýst ekki um að vera á móti uppbyggingu. Þvert á móti. Við viljum að Reykjanesbær haldi áfram að vaxa og dafna. Við viljum að uppbygging byggist á góðu samráði, vandaðri undirbúningsvinnu og heildarsýn þar sem hagsmunir samfélagsins eru hafðir að leiðarljósi.

Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með vinnuskólanum leggja sitt af mörkum við að fegra bæinn okkar. Fallegt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það verður til þegar sveitarfélagið og íbúarnir vinna saman og bera sameiginlega ábyrgð á umhverfinu sem við köllum heima. Þess vegna viljum við leggja enn meiri áherslu á fegrun bæjarins, græn svæði, snyrtimennsku og gott umhverfi við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Það er fjárfesting í lífsgæðum okkar allra.

Við getum verið ósammála án þess að verða óvinir. Við getum tekist á um málefni af festu en jafnframt sýnt hvert öðru virðingu. Ég trúi því að þannig verði bestu lausnirnar til og þannig byggjum við sterkara samfélag.

Ég vona að íbúar Reykjanesbæjar finni á þessu kjörtímabili að það sé auðvelt að hafa samband við kjörna fulltrúa, auðvelt að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að á þá sé hlustað. Við eigum ekki alltaf eftir að vera sammála, en ef við hlustum hvert á annað af virðingu eigum við alltaf möguleika á að finna betri lausnir.

Þannig byggjum við traust.

Þannig byggjum við samfélag sem við getum öll verið stolt af.

Margrét Þórarinsdóttir,
forseti bæjarstjórnar  Reykjanesbæjar
og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Eignasalan
Eignasalan