Skötumessan í Garðinum 15. júlí
Skötumessan í Garði verður haldin miðvikudaginn 15. júlí kl. 19.00 í Gerðaskóla í Garði, Suðurnesjabæ.
Að venju er fjölbreytt dagskrá, fatlaðir listamenn koma fram og Baldvin og Dói sjá um létta tónlist í salnum þegar fólk er að koma. Þá verða bræðurnir Baldur og Júlíus Guðmundssynir með tónlistaratriði og Inga Sæland menntamálaráðherra verður ræðumaður kvöldsins.
Að venju er boðið upp á skötu, saltfisk og plokkfisk með tilheyrandi meðlæti og kaffi á eftir.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og að við styðjum saman verkefni sem samfélagið kallar eftir og stöndum vörð um þá sem stuðning þurfa.
Í lok dagskrárinnar verður styrkjum úthlutað sem er framlag allra þeirra sem mæta á Skötumessuna og fyrirtækja sem standa við bakið á okkur og hafa gert það árum saman.
Við bræður í Jóni forseta hlökkum til að sjá sem flest
Til að tryggja sér miða sem fyrst þarf að leggja 8.500 krónur inn á reikning Skötumessunnar-0142-05-70506, kennitölu 580711-0650. Þeir sem vilja styrkja verkefnið en komast ekki geta lagt inn á sama reikning og skrifað skýringartexta um að um stuðning sé að ræða. Þá verða sætin ekki ónotuð á Skötumessunni.
Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst.
Skötumessan





