Fréttir

Gleðilega hinsegin daga: Regnbogafáninn við ráðhúsið á Tjarnargötu
Miðvikudagur 5. ágúst 2026 kl. 09:42

Gleðilega hinsegin daga: Regnbogafáninn við ráðhúsið á Tjarnargötu

Regnbogafáninn hefur verið dreginn að húni við Ráðhús Reykjanesbæjar á Tjarnargötu í tilefni hinsegin daga, líkt og venja hefur verið undanfarin ár.

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu kemur fram að Reykjanesbær vilji vera samfélag þar sem allir eru velkomnir, njóta virðingar og geta verið þeir sjálfir.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Sérstök ástæða er til að fagna á Suðurnesjum því FS-ingurinn Guðjón Þorgils Kristjánsson flytur lag Hinsegin daga í ár. Reykjanesbær sendir Guðjóni Þorgils innilegar hamingjuóskir og óskar honum góðs gengis með flutninginn.

Hljómahöll
Hljómahöll