Fréttir

Ár liðið frá síðustu goslokum
Mynd frá 20. júlí 2025 af síðasta eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni. VF-mynd: Ísak Atli Finnbogason
Miðvikudagur 5. ágúst 2026 kl. 09:59

Ár liðið frá síðustu goslokum

Í dag, 5. ágúst 2026, er nákvæmlega eitt ár liðið frá því að goslokum var lýst yfir á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Eldgosið, sem hófst 16. júlí 2025 við Stóra-Skógfell, stóð yfir í tæpar þrjár vikur og var níunda gosið á Sundhnúksgígaröðinni og það tólfta á Reykjanesskaga frá því að umbrotin hófust árið 2021.

Veðurstofa Íslands fylgist áfram náið með landrisi, kvikusöfnun og jarðskjálftavirkni á Svartsengissvæðinu og nágrenni. Þótt hlé hafi verið á eldgosum síðasta árið telja jarðvísindamenn að umbrotatímabili á skaganum sé ekki lokið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að kvikusöfnun undir Svartsengi frá upphafi síðasta goss, 16. júlí 2025, sé metin á 28,3 milljónir rúmmetra, með óvissubili frá 27,5 til 29,1 milljón rúmmetra.

Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Eignasalan
Eignasalan