Hélt því fram að maðurinn sinn væri símvirki og var rekin af tjaldstæðinu
Þórunn Katla Tómasdóttir, grunnskólakennari og þriggja stráka móðir, blæs til pálapartýs um leið og hitinn fer í tuttugu gráður. Hún elskar að hóa fólkinu sínu saman, búa til minningar og brasa við gúrmei meðlæti á grillinu. Sumarið fer að miklu leyti í að elta fótboltaleiki, en hún á líka óborganlega sögu af því þegar hún reyndi að svindla fjölskyldunni inn á tjaldsvæði.
Boltinn, pallurinn og 20 stiga hiti
Fótboltinn einkennir mikið fjölskyldulífið hjá Þórunni og er helsta áhugamál þeirra allra. Uppáhalds sumarminningarnar tengjast einmitt því að elta strákana þrjá á fótboltamót um allt land, ásamt útilegum og ekta íslenskum sumarkvöldum.
En hvað gerir hún þegar það spáir alvöru sumri og 20 stiga hita?
„Ég býð í partý á pallinn minn! Það er besta fjárfesting sem við höfum gert. Það jafnast fátt við góðan sumardag á pallinum með góðum mat og drykkjum.“
Á grillinu er alltaf gott kjöt, en Þórunn viðurkennir að hún sé mikill brasari: „Ég elska að gera gúrmei sumarmeðlæti með kjötinu. Því meira bras, því betra! Uppáhaldið er sumarlegt salat með jarðarberjum, mangó og allskonar gúmmelaði, heimagerðar kaldar sósur eða bernaise, fyllt grillað grænmeti og góðar kartöflur.“
Ómissandi hefðir og húllumhæ: Sankar að sér minningum
Þórunn er mikið í því að koma fólkinu sínu saman á sumrin og nýtir hvert einasta tækifæri til að skapa gleði og búa til nýjar minningar. Dagbókin er þéttskipuð af föstum hefðum sem mega alls ekki missa sín.
„Verslunarmannahelgin með vinahópnum okkar er ómissandi hluti af sumrinu. Svo elskum við til dæmis stórmót í fótbolta, sem eru annað hvert sumar, og mér finnst gríðarlega gaman að búa til tippleik í kringum það með stórfjölskyldunni,“ segir hún áhugamiðuð.
Hóparnir hennar eiga líka sína föstu hittinga: „Mér finnst nauðsynlegt að hóa vinkonuhópunum saman í skemmtun. Svo hittist gamli Danmerkurhópurinn okkar í árlegum golfhittingi og því fylgir alltaf mikið húllumhæ. Að lokum fer ég í árlega langa göngu með gönguhópnum mínum, en við höfum gengið um svo mikið af fallegum perlum á Íslandi.“
Fyndnasta ferðasagan: Rekin af Apavatni
Þegar Þórunn er spurð út í verstu eða fyndnustu útilegusöguna stendur ein upp úr, en hún hefur ekki stigið fæti á viðkomandi stað í tæp tuttugu ár.
„Ætli Apavatnsútilegan toppi ekki allt. Þetta var árið 2008 þegar ég svindlaði mér inn á tjaldsvæðið hjá Rafiðnaðarsambandinu og bauð stórfjölskyldunni með. Allir voru mættir, byrjað að grilla og allir í alvöru sumargír þegar tjaldvörðurinn mætir skyndilega á svæðið. Þá voru góð ráð dýr!“ segir Þórunn og hlær.
„Til að gera langa sögu stutta þá reyndi ég að bjarga málunum og sagði að maðurinn minn væri símvirki og var með hörku útskýringar á því. Mitt á meðal þessara ræðuhalda kemur tengdapabbi minn dæmigerður og segir saklaus: „Er eitthvað vandamál? Þau eru bara námsmenn í Danmörku og hún bauð okkur með sér hingað.“ Tjaldvörðurinn horfði þá á mig mjög ákveðinn og sagði: „Ég held að þú og þinn símvirki ættuð að koma ykkur í burtu.“ Ég hef ekki farið á Apavatn síðan!“
SUMARRÁÐ
Bíltúralagið í ár: „Kominn heim“ með Kristmundi Axel. „Kannski ekki það sumarlegasta, en mér finnst það æðislegt og það er frekar nýtt.“
Fullkominn frídagur: „Fara í fjallgöngu á Móskarðshnjúka eða með fjölskylduna í brunch í Reykjavík og borða úti. Allavega vera úti allan daginn og njóta.“
Faldi gimsteinninn: „Garðskaginn er einstakur á fallegum sumardegi og kvöldi. Og svo vil ég nefna Kerlingafjöll, það er eins og að vera staddur í fallegu málverki.“
Í sólbaðinu: „Úfff, mig langar svo að verða bókatýpan! Ég fór til Tenerife í maí með vinkonunum og ætlaði aldeilis að lesa, en niðurstaðan var fimm blaðsíður. Svo ég mæli frekar með hlaðvörpum um allt milli heima og geima.“
Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Finna sér áhugamál utandyra; hlaupa, göngur, golf eða veiði og njóta í góðum félagsskap. Fjárfesta í góðum regn- og ullarfötum og láta veðrið ekki stoppa sig. Við höfum víst enga stjórn á þessu blessaða veðri á þessu landi, en á ótrúlegan hátt jafnast samt ekkert á við gott íslenskt sumar!“






