Keflavíkursigur á KA
Keflavík vann öruggan 3-0 sigur á KA í Bestu deild karla í kvöld á HS Orkuvellinum í KEflavík í leik þar sem úrslitin réðust að miklu leyti á ótrúlegum tíu mínútna kafla í fyrri hálfleik.
KA-menn byrjuðu leikinn af krafti og ógnuðu snemma, en Keflvíkingar bitu hressilega frá sér og tóku forystuna á 27. mínútu þegar Sindri Snær Magnússon rúllaði boltanum glæsilega í hornið fjær. Aðeins fimm mínútum síðar tvöfaldaði Dagur Ingi Valsson forystuna eftir sendingu frá Axeli Inga Jóhannessyni, og á 36. mínútu nýtti Stefan Alexander Ljubicic sér mistök í vörn gestanna og kom Keflavík í 3-0.
Seinni hálfleikur varð nokkuð skrautlegur þegar Eiður Orri Ragnarsson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 62. mínútu fyrir meintan leikaraskap. Þrátt fyrir að vera manni færri héldu heimamenn haus og sóttu án afláts og KA-mönnum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn til að ógna marki Keflavíkur að neinu ráði. Öruggur og verðskuldaður sigur Keflavíkur var staðreynd.
Haraldur Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum ánægður með sigurinn og mikilvægu stigin þrjú í baráttunni í efri hlutanum.
„Já, bara mikilvægur sigur, góður sigur. Við gerðum þetta svolítið erfitt fyrir okkur að vera einum færri hérna í miðbik seinni hálfleiks. En við vörðumst mjög vel og erum í raun og veru líklegri til að bæta við fjórða markinu en að þeir minnki muninn, þannig að sigurinn var kannski aldrei í hættu. Virkilega ánægður með strákana,“ sagði Haraldur.
Aðspurður um rauða spjaldið sem Eiður Orri hlaut átti Haraldur erfitt með að skilja dómara leiksins. „Ég sé það náttúrulega ekki almennilega, þetta er lengst á hinum kantinum, en hann fær seinna gula spjaldið fyrir dýfu. Ég á mjög erfitt með að trúa því að hann hafi verið að dýfa sér kominn fram hjá manninum. Það var mikið af óþarfa spjöldum og skrýtin lína hjá dómurunum í seinni hálfleik, en það skiptir engu máli núna, við erum með þrjú stig.“
Keflavík hefur sýnt mikla markasækni á heimavelli undanfarið og Haraldur horfir bjartsýnn fram á veginn: „Við erum komnir með átta mörk í síðustu tveimur heimaleikjum og okkur líður vel hérna. Nú snýst þetta bara um að endurheimta og undirbúa okkur fyrir erfiðan leik á móti Stjörnunni á sunnudaginn.“






