Íþróttir

U16 landslið stúlkna mætt til Grikklands: Sterkur hópur frá Suðurnesjum
Ljósmynd: kki.is
Miðvikudagur 5. ágúst 2026 kl. 09:46

U16 landslið stúlkna mætt til Grikklands: Sterkur hópur frá Suðurnesjum

U16 ára landslið stúlkna í körfubolta er mætt til Ioannina í Grikklandi þar sem liðið leikur í B-deild EuroBasket (EM). Suðurnesin eiga stóran hlut í hópnum að þessu sinni, en sex leikmenn úr liðinu koma frá félögunum á svæðinu.

Keflavík á öflugan hóp fulltrúa í liðinu, en þær Björk Karlsdóttir, Elva Björg Ragnarsdóttir, Heiðrún Lind Sævarsdóttir, Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir og Oddný Hulda Einarsdóttir leika allar með liðinu. Þá á Njarðvík sinn fulltrúa í hópnum, hana Dagbjörtu Dóru Kristmannsdóttur.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Íslenska liðið leikur í F-riðli og er leikjadagskráin í riðlakeppninni eftirfarandi (á íslenskum tíma):

  • Fimmtudaginn 6. ágúst kl. 14:00: Ísland – Noregur
  • Laugardaginn 8. ágúst kl. 14:00: Ísland – Bretland

Ef íslenska liðið hafnar í einu af tveimur efstu sætum riðilsins tryggir það sér sæti í undanúrslitum sem leikin verða mánudaginn 10. ágúst. Hreppi liðið í þriðja sæti riðilsins leikur það um 5. sætið þriðjudaginn 11. ágúst.

Þjálfari U16 liðsins er Hákon Hjartarson og honum til aðstoðar eru þau Bruno Richotti og Embla Ásgeirsdóttir. Sýnt verður frá öllum leikjum í beinu opnu streymi á opinberri heimasíðu mótsins hjá FIBA.

Eignasalan
Eignasalan