Eignasalan
Eignasalan

Fréttir

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttur
Fimmtudagur 16. júlí 2026 kl. 17:01

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttur

Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Sæbjörgu Þóru Hafþórsdóttur. Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á Sæbjörgu, sem hefur ekki sést síðan kl. 19:00 þann 14.07.2026.

Sæbjörg er hvött til að hafa samband við fjölskyldu sína eða lögreglu sem allra fyrst.

Við hvarf sitt var Sæbjörg klædd í svartar joggingbuxur, bláa hettupeysu með rennilás, svartan Reykjavík Roses jakka og hvíta og svarta Nike skó. Sæbjörg er um 153 cm á hæð og með dökkt, sítt hár.

Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ferðir eða dvalarstað Sæbjargar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í gegnum Neyðarlínuna í síma 112.
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Eignasalan
Eignasalan