Samþykktu aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum í Vogum
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt samhljóða tillögur um aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum vegna stöðunnar í leikskólamálum sveitarfélagsins. Minnisblað þess efnis var lagt fram af bæjarstjóra og kynnt á fundi ráðsins, þar sem Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sat einnig undir þessum lið.
Bæjarstjóra hefur nú verið falið að vinna nánari útfærslu á aðgerðunum, ásamt því að leggja fram endanlegt kostnaðarmat og tillögu að fjármögnun.
Breytingar taka gildi í haust
Stefnt er að því að útfærðar tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu í ágúst næstkomandi. Markmiðið með aðgerðunum er að breytingar á heimgreiðslum og niðurgreiðslum vegna barna sem eru 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum geti tekið gildi þann 1. september 2026.






