Íþróttir

Keflvíkingar missa lykilmann til Danmerkur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 19. júlí 2026 kl. 14:49

Keflvíkingar missa lykilmann til Danmerkur

Davíð Helgi Aronsson, einn besti leikmaður Keflvíkinga í Bónus deildinni á þessu tímabili leikur ekki fleiri leiki með liðinu. Hann er á leiðinni til Danmerkur.

Davíð kom til félagsins á láni frá Víkingi fyrir tímabilið og hefur verið mikilvægur hlekkur í varnarleik liðsins í sumar. Nú heldur hann til Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni þar sem hann mun taka næsta skref á ferlinum. Þetta er mikill missir fyrir Keflvíkinga en Davíð Helgi hefur verið burðarás í vörn liðsins í sumar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Eignasalan
Eignasalan