Vinna hafin við nýtt áhættumat fyrir Grindavík
Vinna við nýtt áhættumat fyrir Grindavíkurbæ er opinberlega hafin. Bæjarráð Grindavíkur fagnar þessum áfanga á fundi sínum í gær og væntir þess að áhættumatið muni veita skýri forsendur til að taka næstu skref í uppbyggingu og samfélagslífi bæjarins með öryggi íbúa að leiðarljósi.
Á síðasta fundi bæjarráðs voru lögð fram fyrstu vinnugögn og fundargerðir úr tveimur sérstökum verkefnahópum sem þegar hafa hafið störf:
-
Skólahald í Grindavík
-
Öryggi í Grindavík
Bæjarráð bindur miklar vonir við niðurstöður vinnunnar og undirstrikar að öryggi verði ávallt í fyrsta sæti þegar ákvarðanir um framhaldið verða teknar.






