Aðsent

Var þetta kosningaloforðið?
Föstudagur 7. ágúst 2026 kl. 08:10

Var þetta kosningaloforðið?

Það er búið að vera skrítið að fylgjast með ríkisstjórninni undanfarið. Hún var kjörin næstum eingöngu til að lækka vexti og koma á efnahagslegum stöðugleika á ný, samt er bara búið að vera að gera þveröfugt. Stýrivextir, sem voru á niðurleið, hafa hækkað á ný. Verðbólgan sem var á stöðugri niðurleið er aftur farin á fulla ferð og hvað er gert?

Gjaldskrár hins opinbera eru hækkaðar og embættismönnum fjölgað í stað þess að borga niður skuldir ríkisins í meira mæli. Það vekur upp spurningar. Hvað er þá verið að gera ef ekki var tæklað helstu kartöfluna í síðustu kosningum?

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Núna er verið að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandið þar sem vandamálin eru enn stærri og fleiri en hérlendis. Þar er atvinnuleysi meðal ungs fólks alvarlegt vandamál. Samkvæmt nýjustu spám eru enn fleiri vandamál að myndast í fjármálum sambandsins. Stóraukin útgjöld, skuldastaða sambandsríkjanna hefur aukist gífurlega og skuldir sambandsins sjálfs einnig. Þá hafa mörg fyrirtæki flutt vegna þungs regluverks og veikrar samkeppnisstöðu. Evrópusambandið stendur sjálft frammi fyrir mörgum áskorunum og stendur á villigötum.

Ég vil að Ísland haldi áfram að vera samkeppnishæft þrátt fyrir smæð okkar. Til þess þurfum við að halda öllum verkfærum fullvalda ríkis og nýta þau. Sama hvort það séu varnar-, viðskipta- eða hvers konar samningar. Nýta styrkleika og sérstöðu okkar, það eru stuttar boðleiðir, sveigjanleiki og raunveruleg tækifæri til þess að skapa velferð.

Því þótt stjórnmál og hagstjórn gangi ekki alltaf upp hér þá getum við skipt því öllu út með einni kosningu. Stjórnmálamenn eru teknir til ábyrgðar og kosnir út ef þeir standa sig ekki. Meirihluti fær umboð til að stýra kjörtímabilinu en ekki umboð til frambúðar.

Fannar Logi Waldorff

Höfundur er verðandi lögfræðinemi og sat á framboðslista D-lista og óháðra í Suðurnesjabæ

Eignasalan
Eignasalan