Fyrsti hlustunarfundur Kristrúnar í Reykjanesbæ í kvöld
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra býður til hlustunarfundar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja kl. 20:30 í kvöld, þriðjudaginn 11. ágúst. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð um landið sem forsætisráðherra hefur boðað í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst.
„Ég hlakka til að koma í Reykjanesbæ í kvöld og hefja þar fundaferð um hagsmuni Íslands. Hlustunarfundirnir eru vettvangur fyrir já-fólk, nei-fólk og óákveðna til að ræða beint við forsætisráðherra um sín sjónarmið, vonir, væntingar og áhyggjur fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Ég kem til að hlusta,“ segir Kristrún.
„Ég trúi því að við getum tekið þessa stóru og mikilvægu ákvörðun sameinuð sem þjóð, án þess að láta umræðuna sundra okkur. Það er alltaf gaman að taka hús á Suðurnesjamönnum og ég hef gjarnan byrjað mínar fundaferðir suður með sjó. Ég á ekki von á öðru en að við munum eiga hreinskiptið samtal í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í kvöld.“
Eins og áður segir hefst fundurinn kl. 20:30. Kristrún heldur fundaferð sinni áfram strax á morgun, 12. ágúst, með fundi á Eskifirði og verður því næst á Djúpavogi að morgni 13. ágúst. Ítarlegar upplýsingar um alla fyrirhugaða hlustunarfundi má finna á samfélagsmiðlum Kristrúnar.





