Hámark almyrkva er kl. 17:48:44
Eins og veðurhorfur eru fyrir daginn þá eru litlar líkur til þess að við sjáum almyrkvann sjálfan, þ.e. tunglið fyrir sólinni, þar sem ský munu birgja sýn. Hins vegar munum við sjá áhrif almyrkvans þar sem hann mun bresta á með nótt rétt á meðan tunglið heldur aftur af sólarljósinu.
Deildarmyrkvi hefst kl. 16:47:01 í dag hjá þeim sem ætla að njóta hans á Garðskaga. Almyrkvi hefst kl. 17:47:52 og almyrkva lýkur 1 mín og 43 sekúndum síðar eða kl. 17:49:35. Deildarmyrkva lýkur svo kl. 18:47:43. Sjónarspilið stendur því í tvær klukkustundir en hámark almyrkva er kl. 17:48:44.
Þeir sem kjósa að horfa til himins frá Sandgerði geta notið almyrkva tveimur sekúndum lengur eða í 1m45s.







