Reykjanesbær Myrkvastund
Reykjanesbær Myrkvastund

Íþróttir

Keflavík fær tvo nýja leikmenn
Elvis og Mate eru nýir leikmenn hjá Keflavík. Myndin af Elvis er frá Hafliða Breiðfjörð/fotbolti.net
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 12. ágúst 2026 kl. 15:34

Keflavík fær tvo nýja leikmenn

Keflvíkingar tryggðu sér tvo nýja erlenda leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaðist en liðið hefur orðið fyrir nokkrum skakkaföllum með leikmannahópinn í Bestu deildinni að undanförnu.

Elvis Okello Bwomono skrifaði undir rúmlega tveggja ára samning við félagið. Hann kemur til Keflavíkur á frjálsri sölu frá Aberdeen í Skotlandi, en samningur hans við félagið rann út í sumar. Hann lék alls þrjá leiki fyrir skoska liðið. Elvis þekkir vel til hér á landi en hann lék með ÍBV á árunum 2022 og 2023 og kom aftur til félagsins á seinni hluta síðasta tímabils.

Elvis er frá Úganda, en er einnig með enskan ríkisborgararétt. Hann getur leikið bæði sem miðvörður og hægri bakvörður. Hann lék með ÍBV í tvö ár 2022-2023 og hluta tímabils 2025 og var einn af bestu leikmönnum Eyjamanna.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hinn leikmaðurinn er Mate Simicic en hann kemur frá belgíska félaginu Standard Liege, þar hefur hann spilað með varaliði félagsins. Simicic er nokuð hávaxinn Króati, fæddur er 2005 og getur bæði spilað sem miðvörður og varnarsinnaður miðjumaður. Simicic er kominn með leikheimild og gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Þór á Akureyri á laugardag.

Hljómahöll
Hljómahöll